149. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[04:49]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti ætlar ekki í rökræður við varaforseta sinn á þessum vettvangi en tekur undir það sem hér er sagt. Reyndar er hv. þingmanni væntanlega kunnugt um að það er reynt að samræma fundarstjórn forseta. Til er handbók sem forsetar geta stuðst við í þeim efnum, þannig að eftir föngum sé reynt að samræma það hvernig forsetar taka á hliðstæðum tilvikum í fundarstjórn.