149. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[04:58]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég skil hv. þingmann mjög vel að því leyti að auðvitað er það til lengdar bæði þreytandi og frekar niðurbrjótandi að standa í viðræðum eða umræðu um mál sem enginn fæst til að taka þátt í.

Oft og tíðum hefur verið kallað eftir viðveru ráðherra við slíkar umræður. Ég veit að fjármálaráðherra er erlendis. Það er hins vegar spurning um hvort ekki sé rétt að fresta 2. umr. málsins þar til hæstv. fjármálaráðherra getur tekið þátt í henni og sefað áhyggjur okkar sem eru þær að hér sé verið, með því frumvarpi sem liggur fyrir og á að fara í gegnum Alþingi á þremur tímum og korteri, að rýra möguleika og rýra hagsmuni Íslands með þeim hætti í málinu eins og það liggur fyrir núna og eins og það blasir við núna, óskýrt og órætt. Þá væri kannski ráð að fresta umfjöllun málsins þar til hæstv. fjármálaráðherra getur verið hér og farið yfir málið á heldur lengri tíma en sjö mínútum og gæti þá hugsanlega varpað ljósi á það fyrir okkur sem höfum raunverulegar áhyggjur af málinu. Sú ein er ástæðan fyrir því að við höfum staðið í þessari umræðu í þennan tíma.

Það væri kannski ráð að beina því til forseta þingsins að hann íhugi það með sjálfum sér hvort það geti bætt ásýnd málsins og umfjöllun og bætt verklag Alþingis við að afgreiða það að láta umræðunni ólokið þar til fjármálaráðherra getur verið með okkur.