meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Forseti. Já, þetta er ágætishvatning hjá hv. þingmanni. Hins vegar hefur forseti ekki sýnt neina tilburði í þá veru að hann vilji beita sér fyrir því að hin hliðin fái að koma fram. Þvert á móti er að mati forseta betra að ræða þetta mál í skjóli nætur.
Þess vegna er ég ekki bjartsýnn á að tekið verði vel í þessa annars mjög svo skynsamlegu hugmynd. Auðvitað væri eina vitið að fjármálaráðherra væri á landinu til að taka þátt í umræðunni. En í millitíðinni verðum við bara að reyna að draga sem best fram okkar hlið á málinu.
Þar er reyndar ýmislegt órætt því að þetta er svo stórt og umfangsmikið hagsmunamál, bæði út frá efnahagslegu hliðinni en líka út frá trúverðugleika stjórnvalda. Það er ýmsu auðvitað við það að bæta sem þegar hefur verið bent á, þó að umræðan væri augljóslega betri (Forseti hringir.) ef menn leituðust við að útskýra sína hlið, þeir sem vilja samþykkja þetta mál.