149. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[05:09]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég tek undir þetta með hv. þingmanni. Auðvitað er það mjög æskilegt að báðar eða allar hliðar þessa máls komi fram í umræðu. Það væri farsælast fyrir málið sem slíkt, það væri farsælast fyrir báða aðila, þá sem vilja samþykkja þetta mál og þá sem hafa efasemdir — og það væri náttúrlega til að undirstrika eflingu Alþingis sem núverandi ríkisstjórn segist standa fyrir.

Þessi umræða er góð og hún verður í sjálfu sér að mínu áliti betri eftir því sem á hana líður vegna þess að við erum kannski smátt og smátt, þótt frá annarri hliðinni sé, að nálgast þann kjarna sem málið felur í sér. Það er vel.

Umræðan verður aldrei fullkomin eða góð fyrr en báðar hliðar heyrast. (Forseti hringir.) Þess vegna væri æskilegt að fjármálaráðherra kæmist að þessari umræðu með einhverjum hætti á einhverjum tíma.