149. löggjafarþing — 70. fundur, 27. feb. 2019.
meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
486. mál
Forseti vill segja að nú erum við þar stödd í nóttinni að við erum komin nokkru miklu nær rismálum en nóttu og fer að koma til greina, að mati forseta, að láta nótt sem nemur.
Forseti vill þó spyrja hv. 3. þm. Suðurk., sem er næstur á mælendaskrá, hvort hann væri sáttur við að bíða með ræðu sína þar til á morgun, gangi þau áform forseta eftir að umræðum megi verða fram haldið í eftirmiðdaginn á morgun.
Óska menn að ræða fundarstjórn forseta? (Gripið fram í: Já, ég vil endilega ræða hana.)