149. löggjafarþing — 70. fundur,  27. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[05:19]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég lét þess getið áðan að skynsamlegt gæti verið til að skapa meira traust um málið að umfjöllun um það í 2. umr. yrði frestað þar til hæstv. fjármálaráðherra hefði tök á að vera með okkur og útskýra eitt og annað fyrir okkur sem höfum staðið hér drykklanga stund í þessari umræðu.

Þess vegna langar mig, til að gera það formlega, að biðja forseta um það hvort hann geti fundið flöt á því milli núverandi stundar og morgundagsins sem nálgast óðfluga, að aðgæta hvort hægt væri að fresta umræðu málsins þar til hæstv. fjármálaráðherra mætir til landsins úr ferð sinni. Ég hygg að það þyrfti ekki mjög langa umræðu með hæstv. fjármálaráðherra til að ljúka umræðunni með sæmilegum hætti. (Forseti hringir.)

Ég vænti þess, vegna þess að ég þekki hann sem drengskaparmann, að við ættum ekki í nokkrum vandræðum með að eiga við hann gott samtal um málið og ég skora því á hæstv. forseta að taka bón mína til (Forseti hringir.) gaumgæfilegrar athugunar.