meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að fullyrða það en ég held að enginn kappleikur hafi unnist í búningsklefanum. Auðvitað skiptir undirbúningur liðsins miklu máli og 2015 var búið að vinna mjög lengi, og í raun áfram það ár, að undirbúningi fyrir þá miklu atburði eða keppni eða áætlun sem lagt var af stað með; sú áætlun var samþykkt árið 2015. Vitanlega er undarlegt að menn hafi viljað gefa frá sér fullnaðarsigur. Hv. þingmaður er íþróttamaður og þekkir vel það orðalag að vinna fullnaðarsigur. Og hér erum við að sjálfsögðu að fjalla um að vinna fullnaðarsigur fyrir Íslands hönd, um það hvort við getum náð betri árangri fyrir Íslands hönd gagnvart þessum aðilum en lagt er upp með í frumvarpinu.
Margt bendir til þess að svo geti verið. Ég segi að margt bendi til þess vegna þess að við höfum ekki fengið svör við því. Hv. þingmaður hlýtur að hafa velt fyrir sér hvers vegna hann fær ekki svör við spurningum sínum. Við höfum ekki fengið svör við því enn af hverju sú leið er farin að gefa þessum aðilum eftir þetta miklar eignir með því að bjóða þeim upp á þennan „díl“, ef þannig má orða það — ég biðst afsökunar, virðulegur forseti, á því orðfæri — sem þeir virðast vera að fá hér.
Ég spyr því enn og aftur hvort það sé fjarri lagi að ætla að við hefðum getað gert töluvert mikið fyrir eldri borgara og aðra sem hafa beðið eftir leiðréttingu á kjörum sínum fyrir þá fjármuni sem þarna eru, svo að ekki sé talað um að koma með innspýtingu inn í húsnæðismálin sem mjög er kallað eftir, t.d. í tengslum við kjarasamninga og áfram mætti telja.