meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta svar. Það hefur komið fram í máli manna að það gætu verið allt að 20–25 milljarðar sem þarna kæmu til ríkisins ef breytt væri um kúrs frá því sem nú er verið að tala um. Ég veit að þingmaðurinn er mjög áhugasamur, ásamt þeim sem hér stendur, um heilbrigðismál, og þá ekki síst á sviði geðheilbrigðis- og sálfræði og því tengt er líka áfengis- og fíkniefnavandi og mörg önnur vandamál á andlega sviðinu. Ef við gefum okkur að þessir peningar rynnu til ríkissjóðs, hvað telur þingmaðurinn að sé brýnast á þessu sviði? Þá er ég ekki endilega að tala um þessi andlegu svið heldur á heilbrigðissviðinu. Í hvaða bauk á þeim bæjum ættum við að stinga pening? Hvað er brýnast?
Við höfum mikið talað um forvarnir í heildstæðri mynd, frá vöggu til grafar og þar fram eftir götunum. Í hvað í heilbrigðiskerfinu myndum við fyrst setja peninga? Eða myndum við dreifa þeim jafnt yfir alla?