149. löggjafarþing — 71. fundur,  27. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[19:11]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er hárrétt hjá hv. þingmanni að fyrirtæki eða þeir sem eru í rekstri eru að sjálfsögðu í því til að ávaxta sitt pund eða til að ná einhverjum árangri. Í það minnsta aðhyllist maður að það sé eðlilegt. Auðvitað eru til aðrar kenningar, að ríkið eigi að sjá um allt, að það eigi að ekki endilega að skila hagnaði og þess háttar.

Ég hef ekki enn þá fengið skýringar á því hvers vegna sú tala sem hér um ræðir sé sú eina rétta. Ég er búinn að lesa nefndarálitið, lesa umsagnirnar, lesa frumvarpið og greinargerðina og hef ekki fundið — mér hefur kannski yfirsést það — rökin fyrir því. Það breytir því ekki að við erum að tala um allt aðrar upphæðir og allt aðrar lausnir en lagt var af stað með, eins og við höfum margoft bent á og kallað eftir skýringum á því hvers vegna menn eru að fara þessa leið núna, halda áfram að bakka frá því sem lagt var upp með. Eina svarið sem við höfum fengið er að það sé best, án þess að það sé rökstutt hvernig menn komast að þeirri niðurstöðu.

Ég missti af því í ræðu hv. formanns nefndarinnar þegar hann talaði um góð og vond fyrirtæki. Ég held að það sé ekki í sjálfu sér rétt að skipta því upp. Kannski fellur maður sjálfur stundum í þá gryfju að skipta fyrirtækjum upp. Allir eru, eins og kom fram í máli mínu fyrr, flestir í það minnsta, í þessu til að hafa eitthvað upp úr því, sem er bara eðli viðskipta og eðli þeirra sem reka fyrirtæki. Þeir aðilar sem stunda þessi viðskipti með krónueignir eða gjaldeyrisviðskipti eru ekkert öðruvísi en aðrir með það.