störf þingsins.
Hæstv. forseti. Það er ekki laust við að gamlir baráttumenn fyrir bættum samgöngum til Vestmannaeyja hafi glaðst í morgun þegar þeir sáu forsíðu Morgunblaðsins þar sem gat að líta nýju ferjuna á siglingu. Reynslusiglingarnar hafa gefist vel og við vonumst til þess að afhending skipsins verði í lok mars þegar þjálfun starfsmanna fer á fullt. Við sem höfum staðið í stafni í þessari baráttu höfum auðvitað gengið í gegnum ýmsa orðræðu varðandi framkvæmd Landeyjahafnar og smíði skipsins, en ég er fullviss um að bættar samgöngur til Vestmannaeyja muni líta dagsins ljós þegar nýja ferjan kemur.
Það sem fylgir og ástæðan fyrir því að við réðumst í þetta verkefni á sínum tíma er auðvitað að við viljum auka samkeppnishæfni Vestmannaeyja. Við gerum það með því að tryggja leiðir til þess að íbúaþróun í bæjarfélaginu geti farið upp á við. Við tryggjum að atvinnulífið í Eyjum geti blómstrað og að öll fyrirtækin geti komið sínum vörum frá og til Eyja. Ferjan mun taka fleiri farþega en sá Herjólfur sem siglir í dag. Það verður rúm fyrir fleiri bifreiðar. Frakt verður aðskilin frá einkabílum sem þýðir að fiskurinn og sorpið verður ekki innan um fjölskyldubílana. Það eru kojur til staðar í skipinu. Skipið verður svipað lengi að sigla yfir og núverandi Herjólfur en það mun taka skemmri tíma að lesta skipið. Við gerum jafnframt ráð fyrir því að það verði minni frátafir vegna þess að siglingareiginleikar skipsins eru góðir. Bónusinn er síðan að ferjan er rafknúin að mestu sem þýðir frábæra hluti fyrir umhverfið okkar en ekki síður sparnað í rekstri ferjunnar. Ég hlakka til að sigla yfir í mitt nágrannasveitarfélag (Forseti hringir.) í Eyjum og hlakka til að sjá Vestmannaeyinga á þeim góða degi.