149. löggjafarþing — 72. fundur,  28. feb. 2019.

störf þingsins.

[10:45]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseti. Ég ætla að vera á svipuðum slóðum, eða á sama stað og hv. þm. Inga Sæland var hér í síðustu ræðu, og ræða um þá stöðu sem uppi er í málum SÁÁ og starfsemi þeirra. Það eru mjög sláandi fréttir að verið sé að loka göngudeildum og að þeir peningar, sem merktir voru því að stytta biðlistana á Vogi, að við héldum, eða alla vega ég þegar ég greiddi atkvæði hér fyrir jólin um þessar 150 milljónir, eru ekki merktir því beint heldur einhverju í sambandi við göngudeildir. En samt er það einhvern veginn í stíflu þannig að það á líka að fara að loka þeim.

Mig langar að beina orðum mínum til hæstv. heilbrigðisráðherra. Ég finn og veit að ráðherrann er að vinna heils hugar að því að byggja upp heilbrigðiskerfið og þar með velferðarkerfi í kringum áfengis- og vímuvarnir. Ráðherranum verður tíðrætt um heildstæða mynd þegar kemur að sálfræði, geðhliðinni og alkóhólisma, eins og ég hef oft talað um í sambandi við biðlistana á Vogi.

En það er nú bara þannig hjá þeim sem haldnir eru þessum sjúkdómi og lenda í geðrofi eða geðhvörfum og sálarklemmum, að það er ekkert hægt að vinna í sálfræði eða geðhliðinni nema viðkomandi komist frá neyslu og sé hjálpað á fætur hvað það varðar. Þá er hægt að fara að vinna í sálfræði- og geðbatteríinu. Alkóhólisminn er grundvallarvandamálið hjá þeim sem haldinn er þeim sjúkdómi. Þannig að það er pínulitlir fordómar í þessu og fordómar eru vegna vanþekkingar.