149. löggjafarþing — 72. fundur,  28. feb. 2019.

störf þingsins.

[10:57]
Horfa

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Í dag legg ég fram tillögu til þingsályktunar um breytta framsetningu launaseðla ríkisins og stofnana þess. Með því er verið að fela ríki og stofnunum þess að birta á launaseðli sérstaklega tilgreinda fjárhæð tekjuskatts annars vegar og útsvars hins vegar. Einnig komi fram með skýrum hætti sú fjárhæð sem launagreiðandi greiðir vegna starfsmannsins í tryggingagjöld.

Af hverju legg ég þessa þingsályktunartillögu fram, ásamt nokkrum samflokksmönnum mínum? Jú, til að auka gagnsæi í skattheimtu. Til að auka almenna þekkingu um það hvernig skattfé er skipt milli sveitarfélaga og ríkis og þekkingu á gjöldum, tryggingagjöldum eins og öðrum launatengdum gjöldum launagreiðenda.

Með þessu er lagt upp með að ríkið gangi fram með góðu fordæmi og breyti framsetningu launaseðla sinna strax. Eðlilegt er að launamenn hafi þessar tölur á hreinu, viti hve stór hluti gjalda þeirra er greiddur til ríkisins og hve stór hluti til sveitarfélags. Allt launafólk með 745.000 kr. á mánuði og undir greiðir hærri upphæð til sveitarfélagsins en ríkisins. Það getur ekki verið annað en gott fyrir alla að þekkja það hvernig þeim gjöldum er háttað.

Það hlýtur að vera markmið okkar allra að reyna hér að lækka byrðar á fólki og þar spila allir þessir þættir saman, ekki síst fasteignagjöld. Flest sveitarfélög sinna hlutverki sínu vel og eru til að mynda að lækka skatta og gjöld á fólk, eins og fasteignagjöld. Síðast í gær bárust þær fréttir að sveitarfélagið Rangárþing eystra væri að koma til móts við fasteignaeigendur í sveitarfélaginu með því að lækka fasteignagjöld.

Við verðum að átta okkur á því hverjar afleiðingar skattahækkana eru. Fasteignaskattar á hótel í Reykjavík nema um 16 milljónum meira á þessu ári. Hægt væri að hækka laun (Forseti hringir.) þernu á því hóteli um 26% fyrir þá tölu. Hugsum aðeins um hvar við getum lækkað skatta, hvar við getum létt byrðum af fyrirtækjum og fólki til þess að auka lífskjör í landinu.