149. löggjafarþing — 72. fundur,  28. feb. 2019.

störf þingsins.

[11:01]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Herra forseti. Hæstv. landbúnaðarráðherra gat ekki gert neitt annað en að fara eftir dómum Hæstaréttar og EFTA-dómstólsins um innflutning á fersku kjöti. Í hátt í tíu ár hafa stjórnvöld markvisst og nokkuð meðvitað gert allt til að sniðganga EES-samninginn, okkar mikilvægasta viðskiptasamning á þessu sviði, og kostað til þess tugum milljóna króna. Það sem mér finnst þó þessa dagana jafnvel sýnu verra er að enn eru ráðherrar í ríkisstjórn sem telja að hægt sé jafnvel að handvelja hvaða dómum á að fylgja eftir og hverja á að sniðganga. Ég verð að segja að ég óttast núna þessa aðstöðu sem við erum komin í, verandi með þrjá íhaldsflokka, hvernig þeir hafa verið að ræða í þessu máli, að þeir muni á endanum láta undan innstæðulausum hræðsluáróðri. Þetta er ekkert annað en hræðsluáróður þegar kemur að fersku kjöti. Ef menn lesa plöggin þar sem sérfræðingar, m.a. ráðuneytisins, hafa sagt hefur til að mynda frystiskylda ekki nein áhrif. Það er miklu frekar að frystiskylda sé mjög markviss tæknileg hindrun til að torvelda samkeppni. Það er ekki af hinu góða og við í Viðreisn horfum þannig á það.

Ég óttast líka að ríkisstjórnin láti ekki bara undan hræðsluáróðrinum heldur fari líka að finna upp á nýjum leiðum til að brjóta á EES-samningnum. Við skulum hafa hugfast að gríðarlegir hagsmunir eru fólgnir í því að viðhalda EES-samningnum, ekki bara miklir hagsmunir neytenda heldur ekki síður útflutningsgreina eins og sjávarútvegs. Það voru Framsóknarmenn, stjórnmálamenn allra flokka, mjög meðvitaðir um þegar skrifað var undir EES-samninginn á sínum tíma. Þetta vógu menn og mátu. Að sjálfsögðu vill enginn ógna lýðheilsu fólks en allir vilja öflugan landbúnað. Þess vegna vil ég miklu frekar hvetja fólk og okkur sem erum hér inni en ekki síður bændur og greinina alla til að nota þetta tækifæri, nýta það sem sókn, fara í sókn (Forseti hringir.) gagnvart aukinni samkeppni því að með aukinni sókn og markvissri samkeppni mun það leiða gott af sér eins og betra vöruúrval, meira vöruúrval (Forseti hringir.) fyrir íslenskar neytendur sem er bara af hinu góða. Horfum á þetta sem tækifæri.