meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Frú forseti. Nú fer að hilla undir lok þessarar umræðu þó að við höfum svo sem daginn fyrir okkur. Ég tel mér rétt og skylt að taka til máls og fara aðeins yfir nokkur atriði. Eins og ég kom að við 2. umr. erum við með samþykkt þessa frumvarps, nái það fram að ganga, sem ég vonast auðvitað til og hef ekki ástæðu til að ætla annað en að það gerist hér, að stíga enn eitt skrefið í því að búa til heilbrigða umgjörð um íslenskt efnahagslíf, tryggja heilbrigðara starfsumhverfi fyrir íslensk fyrirtæki, tryggja að hér verði hægt að beita fjárstýringartækjum eins og aðrar þjóðir gera sem við viljum gjarnan bera okkur saman við. Að því leyti er verið að taka mjög jákvæð skref sem reynast munu heilladrjúg.
Mér finnst hins vegar rétt að menn hafi það í huga að þegar gjaldeyrishöftin voru sett á hér á sínum tíma, eftir hrun bankanna og þá gríðarlega efnahagslegu erfiðleika sem blöstu við íslensku þjóðinni, sem voru fordæmalausir, voru flestir þó sammála eða sannfærðir um að gjaldeyrishöftin væru bara tímabundin. Jafnvel var í upphafi rætt um að þetta væri tímabil sem gæti staðið í kannski tvö ár, en að þeim tveimur árum liðnum væru tækifæri til þess að aflétta þeim og koma hér aftur á heilbrigðara umhverfi. Það reyndist ekki rétt og haftatímabilið stóð lengur en vonir stóðu til með tilheyrandi skaða fyrir almenning, fyrir íslensk fyrirtæki og fyrir efnahagslífið í heild. Engin frjáls þjóð getur til lengdar búið við fjármagnshöft með þeim hætti sem hér voru, en frá 2015–2016 hafa verið stigin markviss skref í að færa okkur aftur inn í heilbrigt umhverfi. Í mars 2017 voru höftin í sjálfu sér að mestu afnumin þó að aflandskrónurnar væru enn þá í ákveðinni umgjörð og höftum. Hér voru líka höft á innflæði, svokölluð innflæðishöft, sem hafa verið okkur dýrkeypt. Ég er einn af þeim sem hafa gagnrýnt það hversu langan tíma þau hafa staðið. Mér finnst við hæfi eftir þessa löngu umræðu að vitna, með leyfi frú forseta, í grein sem sá er hér stendur skrifaði í Morgunblaðið í mars árið 2017. Þar sagði ég orðrétt:
„Auðvitað er það nokkur einföldun að þakka ákveðnum einstaklingum þegar mikilsverðum áfanga er náð — áfanga sem markar upphaf að nýjum tímum og sagt er skilið við fortíðina. En ef nefna á einhverja sem lagt hafa þyngri lóð á vogarskálarnar en aðrir, þá eru það Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra, og Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og fyrrverandi fjármálaráðherra. Einörð stefna ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks frá 2013 gagnvart þrotabúum bankanna gjörbreytti stöðunni. Stöðugleikaframlög og skynsamleg áætlun um losun fjármagnshafta skiluðu áfangasigrum á liðnu ári og gerðu kleift að afnema höftin …“
Ég segi í þessari grein að með þessu sé verið að búa til heilbrigðari umgjörð um efnahagslífið og um íslenskt atvinnulíf vegna þess að höft eru lamandi fyrir viðskiptalífið, draga þróttinn úr fyrirtækjum og hamla vexti þeirra. Hin lamandi hönd haftanna geri nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum alveg sérstaklega erfitt fyrir, ekki síst þegar þau eru að reyna að hasla sér völl á erlendum mörkuðum. Undir höftunum neyddust sum fyrirtæki til að leita óhagkvæmari leiða til að ná markmiðum sínum og sinna því sem til var stofnað.
Ég ætla ekki að fara í deilur við hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson um að hér sé verið að fórna einhverjum fjárhagslegum hagsmunum fyrir ríkið. Fyrir því eru engin skynsamleg rök vegna þess að þá gefa menn sér forsendur sem þeir hafa ekki neinn grundvöll til að gefa sér. Það er bara þannig. Það er ekkert sem segir okkur það og það væri í rauninni gegn heilbrigðri skynsemi að ætla að þeir sem bundnir eru hér í aflandskrónahöftum tækju þátt í útboði sem leiddi til niðurstöðu sem er fjarri því gengi sem nú er opinberlega skráð. Það er ekkert sem fær rennt stoðum undir þá fullyrðingu, en það er annað atriði sem ég hygg að vert sé að þingmenn hafi í huga þegar þeir ganga að lokum í það verkefni að afgreiða frumvarpið, það er auðvitað sú staðreynd að við erum að taka ákveðin skref til þess að afnema innflæðishöftin. Með afgreiðslu og samþykkt þessa frumvarps, líkt og Seðlabanki Íslands bendir á í umsögn sinni um frumvarpið, gætu verið forsendur til að lækka verulega, jafnvel niður í 0, hina sérstöku bindingu á fjármagnsinnstreymi á sama tíma og aflandskrónur eru losaðar. Að afnema innflæðishöftin mun skipta íslenskt viðskiptalíf og atvinnulíf alveg gríðarlega miklu máli, að hér myndist og verði til umgjörð sem gerir það kleift að erlendir fjárfestar komi inn á heilbrigðum nótum vitandi það að þeir geti fjárfest hér og þurfi ekki að binda hluta þess fjármagns sem þeir koma inn með þeim hætti sem gert er á litlum eða engum vöxtum. Bara það atriði ætti að verða til þess að allir þingmenn legðu þessu frumvarpi lið eða stæðu a.m.k. ekki í vegi fyrir framgangi þess.
Það atriði hefur lítið verið rætt í þeirri umræðu sem farið hefur fram hér síðustu sólarhringa, en mér finnst rétt svona undir lokin að benda á þetta og mikilvægi þess að þetta markmið nái fram að ganga. Ég veit að hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skilur þetta einna best af þeim sem sitja í þessum sal. (SDG: Ég er ekki á móti því ákvæði.) — Nei, það er ágætt að hv. þingmaður lýsi því yfir, það gleður hjarta mitt að þá má ætla að hann stuðli að framgangi þess máls.
Frú forseti. Við erum hér að taka eitt af lokaskrefunum í afnámi hafta í að koma á umgjörð sem er heilbrigðari en við höfum gert. Það hefur verið markmiðið frá upphafi. Það hefur verið markmið sem hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson tók þátt í að móta og því má heldur ekki gleyma að allar forsendur fyrir þeim höftum sem við höfum lagt á eru ekki lengur til staðar. Réttlætingin er ekki lengur til staðar, að binda menn í höft og svipta þá í rauninni ráðstöfunarrétti eignanna, vegna þess að ég veit að eignarrétturinn er jafn kær þingmönnum Miðflokksins og okkur í Sjálfstæðisflokknum, og í rauninni öllum í þessum þingsal, hygg ég.
Með þessu erum við að uppfylla þær skyldur, hv. þingmenn, sem við sem frjáls þjóð höfum undirgengist sjálfviljug gagnvart viðskiptaþjóðum okkar og samstarfsþjóðum, gagnvart Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, gagnvart Efnahags- og framfarastofnuninni, OECD, ég tala nú ekki um gagnvart aðildarríkjum EES-samningsins. Það á að vera gleðiefni þegar við göngum þannig fram að við séum að uppfylla þær kröfur og þær skyldur sem við undirgengumst og höfum undirgengist og, það sem meira er, við höfum lofað og heitið því að uppfylla þær. Þetta er loforð sem við gáfum sjálfviljug og ótilneydd.