meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Hv. þingmaður talaði hér um þumalskrúfur. Núna eru engar þumalskrúfur til staðar vegna þess að það var slakað á þeim. Það er kjarni málsins. Stjórnvöld sögðu eitt en gerðu annað og þetta eru skilaboðin út í alþjóðasamfélagið. Hv. þingmaður hefur svo miklar áhyggjur af því að fjárfestingar geti verið í hættu vegna þeirra skilaboða sem er verið að senda út í alþjóðasamfélagið o.s.frv. En hvaða skilaboð er verið að senda með þessu? Það er verið að senda þau skilaboð að íslensk stjórnvöld sýni einhverja hörku en það sé allt í lagi, þau bara slaka á. Skilaboðin eru þessi, eitt er sagt en annað gert. Það er áhyggjuefnið í þessu máli hvað varðar alþjóðasamfélagið.