meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Herra forseti. Skilaboðin sem verið er að senda með samþykkt þessa frumvarps eru þau að hér sé að verða til eðlilegt samfélag, eðlilegur gjaldeyrismarkaður, eðlilegt fjárstreymi milli Íslands og annarra landa og að Ísland ætli sér að vera í hópi þeirra landa sem eru frjáls og njóta velgengni. Það eru nú skilaboðin, hv. þingmaður. Það er röng fullyrðing að það séu bara einhverjir vogunarsjóðir sem eigi þessa 84 milljarða. Það er rangt hjá hv. þingmanni, röng fullyrðing, og hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson getur staðfest það, enda kom það skilmerkilega fram á fundi efnahags- og viðskiptanefndar með starfsmönnum og sérfræðingum Seðlabankans í gærkvöldi. Fullyrðing hv. þingmanns er því röng.