meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Herra forseti. Það er ekkert leyndarmál að við höfum átt langa hugsjónalega samleið, við hv. þm. Óli Björn Kárason, allt frá því að við sátum saman í stjórn hugsjónafélags, Sambands ungra sjálfstæðismanna, reyndar ásamt hv. þm. Ásmundi Friðrikssyni og bróður fjórða þingmannsins, Brynjars Níelssonar, þannig að leiðir okkar hafa legið saman í því að styðja frelsi til orðs og æðis, styðja eignarrétt, mannréttindi og virðingu fyrir lögunum.
Hv. þingmaður er samt ekki í þeirri aðstöðu núna að geta frekar en nokkur annar slegið sér á brjóst sem einhver frelsishetja við afnám fjármagnshafta. Við búum í flestu tilliti við frjálsa skipan í efnahagsmálum okkar. Reyndar hafa fjármagnsöflin allt of sterk ítök í samfélagi okkar og væri hægt að ræða það í löngu máli, en vegna orða hv. þingmanns um innflæðishöftin, sem auðvitað eru okkur þyrnir í augum, hlýt ég að nefna að þau eru ekki þarna bara vegna fúlmennsku einhverra aðila sem eiga þar hlut að máli. Það er ekki þannig. Ef menn velta fyrir sér afleiðingum þess að slaka á þeim í skyndingu sjá menn náttúrlega að af myndi hljótast styrking á gengi krónunnar og lækkun vaxta. Það eru auðvitað margir sem myndu fagna lækkun vaxta. Innflæðishöftin eru til þess fallin að halda uppi vaxtastiginu í landinu en þau eru líka til þess fallin að hafa hemil á gengi krónunnar. Styrking hennar úr hófi fram gæti auðvitað leitt af sér mjög erfið vandamál fyrir (Forseti hringir.) útflutnings- og samkeppnisgreinar, að ég ekki tali um sprotagreinar. Það þarf að líta á þau mál í hinu stóra samhengi og þetta veit ég að hv. þingmaður skilur mætavel.