149. löggjafarþing — 72. fundur,  28. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[12:00]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Óli Björn Kárason) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég held að ég þori að fullyrða að ég tek undir hvert einasta orð sem hv. þm. Ólafur Ísleifsson sagði áðan. Bara þannig að það sé á hreinu, þegar ég segi að hægt sé að afnema innflæðishöftin eða setja bindingarskylduna niður í 0 er ég ekki að tala fyrir því að það verkfæri verði ekki áfram í kistu Seðlabankans. Ég held að nauðsynlegt sé að Seðlabankinn hafi þetta verkfæri til að grípa til þegar nauðsyn krefur, m.a. til að koma í veg fyrir vaxtamunarviðskipti sem því miður voru hluti af því sem gerðist hér og hv. þingmaður þekkir jafnvel betur en ég. Við erum alveg sammála í því en ég held að við séum líka sammála um að undir eðlilegu kerfi, í eðlilegu ástandi, á Seðlabankinn ekki að beita því verkfæri sem er í formi innflæðishafta. Það er einhvers konar neyðarhemill, hemill sem Seðlabankinn verður að hafa í verkfærakistunni. Við tökum til við það líklegast einhvern tímann á næstu vikum þegar frumvarpið um Seðlabankann verður lagt fram, nýtt frumvarp sem hefur verið boðað af forsætisráðherra um Seðlabankann, þá einmitt hljótum við að fara í gegnum það sem og aðra umgjörð peningastefnunnar vegna þess að ekki er hægt að rífa peningastefnuna frá lagalegri umgjörð Seðlabankans. Ég hlakka mjög til að eiga það samtal við hv. þingmann. Svo getum við alltaf rifjað upp góðar stundir í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna undir forystu fyrrverandi forsætisráðherra, Geirs H. Haardes, núverandi sendiherra í Washington. Við áttum góðar stundir saman og það var oft rætt (Forseti hringir.) um hugmyndir frelsis.