meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Herra forseti. Við ornum okkur hér við yl minninganna. Ég get tekið undir það með hv. þingmanni að þetta fjárstreymistæki sem svo er kallað á hátíðlegu máli, held ég að mér sé óhætt að segja, hlýtur að vera fyrir hendi í verkfærakistu bankans. Umfram allt vil ég leggja áherslu á að menn þurfa að nálgast þau viðfangsefni með aðgát, hafa yfirsýn og forsjá. Ég er ekki á því að þetta mál núna sé einhver stórsigur, eitthvert gegnumbrot í viðskiptafrelsi á Íslandi eins og málið liggur fyrir og ég vonast til að fá tækifæri til að rekja í örstuttri ræðu á eftir. Þetta snýst um aðra hluti, þetta er fráhvarf frá þegar markaðri stefnu varðandi frágang þessara mála og sömuleiðis um þær fjárhæðir sem sýnast þarna geta farið forgörðum, en ég heyri að við hv. þingmaður (Forseti hringir.) lítum þann þátt málsins ekki nákvæmlega sömu augum.