meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Herra forseti. Ég get alveg tekið undir það með hv. þingmanni að samþykkt þessa frumvarps er enginn stórsigur í frelsismálum, en þetta er eitt af þeim litlu skrefum sem færa okkur í rétta átt. Þetta er eitt af þeim skrefum sem við höfum verið svo einörð í og ég hélt að við værum öll sammála um að væri nauðsynlegt að taka. Þetta færir okkur fram á við. Þetta mun skipta máli, þetta mun búa til heilbrigðari umgjörð um allt efnahagslífið, um ríkisfjármálin, um peningastefnuna og gefa, ætla ég að fullyrða, súrefni inn í íslenskt viðskiptalíf og við þurfum svo sannarlega á því að halda. Að því leyti finnst mér gleðilegt að við séum að taka þau skref hér í dag. Ég vona að þingmenn Miðflokksins, þó að þeir kunni að vera ósáttir við eitthvað (Forseti hringir.) í því, taki þátt í þeirri gleði.