meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Herra forseti. Ef minnið svíkur mig ekki hef ég í umræðum í þessum þingsal gagnrýnt og ég veit a.m.k. að í greinum hef ég gagnrýnt Seðlabankann fyrir beitingu innflæðishaftanna, bindiskylduna, og talið að engin efnahagsleg rök væru fyrir henni. Af því leiðir að auðvitað er það rétt ályktun hjá hv. þingmanni að forsenda þess að slaka á innflæðishöftunum er ekki samþykkt þessa frumvarps í sjálfu sér en það hjálpar hins vegar til og vinnur allt saman. Það sem við erum að gera hér, og ég vona að hv. þingmenn átti sig á því, er að taka líka skref í þá átt að taka úr sambandi aflandsmarkaðinn. Við erum núna með í rauninni tvöfaldan gjaldeyrismarkað þegar kemur að íslensku krónunni. Við erum með hinn opinbera markað þar sem krónan er skráð, kaup og sala, og svo erum við með aflandsmarkað. Haldi menn að það sé eitthvert heilbrigt ástand að það sé einhver aflandsmarkaður „óregúleraður“ einhvers staðar sem við höfum ekki neina yfirsýn yfir eða áhrif á, vona ég að menn endurskoði sinn hug. Að því leyti erum við að taka skynsamlegt skref (Forseti hringir.) og ég veit að hv. þm. Bergþór Ólason fagnar því.