meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Óla Birni Kárasyni fyrir svarið. Ég taldi mig vita að þetta væri afstaða hv. þingmanns gagnvart innflæðishöftunum. Hvort ég hef heyrt hann tjá sig um það í ræðu eða lesið greinar eftir hann þar sem hann fór inn á það efnisatriði man ég ekki en alla vega get ég sagt að ég sé sammála þingmanninum hvað það efnisatriði varðar.
En ég held að enginn þurfi að velkjast í vafa um að afstaða okkar í Miðflokknum er sú að annað vandamálið, þ.e. innflæðishöftin, hefði verið hægt að leysa án þess að víkja af hinni þegar mörkuðu braut hvað 84 milljarða stabbann varðar. Þessi tvö mál héngu ekki saman. Sú afstaða mín er óbreytt, ég held að það hefði verið hollara að fylgja (Forseti hringir.) þegar markaðri leið sem hafði gengið svo prýðisvel, allt frá því að stabbinn var 1.200 milljarðar. (Forseti hringir.) Nú eru það síðustu 7% sem fá að fara út án nokkurs meðlags.