meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Herra forseti. Ég skil að hv. þingmanni svíði það að ekki sé hægt að knýja eigendur aflandskrónueigna til að sæta einhverjum afarkjörum sem menn telja að eigi að vera eins og þau voru 2016 eða menn féllust á 2016, 190 kr. Það eru bara engin skynsamleg rök sem benda til þess að svo sé vegna þess að eigendur þessara eigna eru ekki vitleysingar. Ég ætla að benda hv. þingmanni á að við erum ekkert að tala um einhverja vonda vogunarsjóði, við erum að tala um einstaklinga, við erum að tala um fyrirtæki, við erum að tala um skuldabréfasjóði sem m.a. hafa verið hér og fylgt okkur í gegnum þykkt og þunnt. Við erum að tala um (Forseti hringir.) að koma á heilbrigðu umhverfi (Forseti hringir.) og það eru verðmæti fólgin í því og skiptir íslenskt efnahagslíf gríðarlega miklu máli.