149. löggjafarþing — 72. fundur,  28. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[12:12]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Frú forseti. Eins og komið hefur fram voru á vormánuðum 2016 aflandskrónueigendum settir afarkostir með lögum. Lögin snerust um að bræða hina svokölluðu aflandskrónuhengju, sem var þá um 319 milljarðar kr., þannig að hægt yrði að ráðast í frekari losun á þeim fjármagnshöftum sem Íslendingar höfðu búið við í tæp átta ár. Málið var lokahnykkur í því haftalosunarferli sem hafði staðið yfir árum saman með söfnun á gjaldeyrisforða, greiningu á greiðslujafnvægi íslenska hagkerfisins og samningum við kröfuhafa föllnu bankanna. Aðferðafræðina þekkjum við og hún hefur verið rædd hér. Í einföldu máli snerist hún um að eigendum aflandskróna voru boðnir tveir kostir eins og fram hefur komið. Annar fólst í því að eigendurnir myndu samþykkja að selja krónueignir sínar á ákveðnu gengi sem var þá 190 kr. fyrir hverja evru en hins vegar var lagt upp með það að ósamvinnuþýðir aflandskrónueigendur, sem neituðu að taka þátt í aflandskrónuútboðinu, myndu fá annað tækifæri til að koma sér út úr íslensku hagkerfi en á verri kjörum. Það er rétt að halda því til haga. Síðan voru fyrirmælin þau að hefðu þeir ekki farið út með sínar eignir væri alls óljóst hvenær þeir hefðu aðgang að eignum sínum og Már Guðmundsson seðlabankastjóri sagði við Morgunblaðið á þessum tíma að þeir myndu lenda aftast í röðinni. Hvað hefur breyst? Jú, við sjáum og þekkjum það og það kemur fram í þessu frumvarpi að nú eru þeir að fara út á betri kjörum þegar alltaf var rætt um verri kjör og það kom m.a. frá seðlabankastjóra.

Það sem mér þykir athyglisvert við þetta mál og þetta frumvarp, herra forseti, er að sjö þingmenn úr Vinstri grænum sátu hjá við afgreiðslu frumvarpsins um aflandskrónuútboðið á vormánuðum 2016 þegar kjörin voru mun betri hvað varðar íslenska hagkerfið og ríkissjóð en þeir ætla hins vegar að styðja þetta frumvarp hér og nú sem felur í sér verri kjör fyrir íslenskt hagkerfi og ríkissjóð. Það vekur óneitanlega athygli.

Það sem vekur mesta athygli við þetta frumvarp sem slíkt er náttúrlega stefnan sem er á bak við það og forsagan kemur að talsverðu leyti fram í langri greinargerð með frumvarpinu. Margir af þessum aflandskrónueigendum eignuðust kröfur sínar fyrir mjög lágt verð, sirka 2–5% af nafnverði, með því að kaupa þær í gegnum uppboð á skuldatryggingum stóru íslensku bankanna eftir að þeir fóru í þrot í október 2008, eins og við þekkjum, og þeir sem höfðu selt tryggingarnar urðu að greiða þeim sem höfðu keypt þær.

Undirliggjandi fóru svo eignir á uppboð samkvæmt sérstökum ákvæðum í tryggingasamningunum. Kaupendurnir voru margir hverjir svonefndir vogunarsjóðir eða hrægammasjóðir sem sérhæfa sig í að kaupa kröfur á gjaldþrota fyrirtæki og sækja á lönd í erfiðleikum eins og Ísland var á þeim tíma. Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar ákvað að þessir aðilar yrðu að greiða svokallað stöðugleikaálag til að geta selt aflandskrónur sínar fyrir erlendan gjaldeyri. Sama gilti um slitabú föllnu bankanna sem afhentu ríkinu miklar eignir. Um þetta má lesa í greinargerð með frumvarpinu en eins og komið hefur fram voru nokkrir sjóðir sem tóku ekki tilboði ríkisstjórnarinnar þá um kaup á evrum á miklu undirverði og brugðust hinir verstu við. Mörgum eru minnisstæðar auglýsingar sem þeir birtu fyrir kosningarnar haustið 2016 og ég hef rætt hér. Það er þekkt þegar þessir ósáttu kröfuhafar, undir nafninu Iceland Watch, birtu heilsíðuauglýsing í Morgunblaðinu, réðust á íslensk stjórnvöld og reyndu að hafa áhrif á úrslit kosninga með auglýsingum daginn fyrir kosningarnar. Þetta mál er náttúrlega með ólíkindum. Þetta var gert fyrir opnum tjöldum og hefði að sjálfsögðu átt að rannsaka á sínum tíma. Lee Buchheit, sem þá var ráðgjafi stjórnvalda, sagði herferð vogunarsjóðanna þekkta en að blanda sér í kosningar í fullvalda ríki væri einsdæmi. Þetta viðurkenndi einnig íslenskur talsmaður sjóðanna í viðtali við Financial Times.

Tilgangurinn var auðvitað sá að reyna að sjá til þess að ný ríkisstjórn myndi taka öðruvísi á málefnum þessara sjóða og sýna meiri sanngirni að þeirra mati. Í upphafi árs 2017 fóru svo kjörin að batna, eins og fram kemur í greinargerðinni, og nú er sjóðunum sem eftir standa boðið að fara út á markaðsverði með afganginn þó svo að íslenska krónan hafi veikst. Það er því alveg ljóst að eftir að nýja ríkisstjórnin tók við, fyrst undir forsæti Sjálfstæðisflokksins og síðan undir forsæti Vinstri grænna, hafa sjóðirnir verið verðlaunaðir fyrir að fara í slag við Ísland og taka ekki upphaflegu tilboði.

Gleymum því ekki að sjóðirnir höfðu leitað réttar síns fyrir dómstólum hér og erlendis en tapað þeim málum og Ísland var í fullum rétti til að beita þessum álögum svo að það sé alveg á hreinu, og rétt að halda því til haga.

Því má segja að bætt kjör vogunarsjóðanna 2017 og núna með þessu frumvarpi eru í raun gjöf til þessara sjóða sem komu hvað verst fram við okkur. Það er hins vegar engin lagaskylda að gera þetta og það verður að segjast eins og er að það vekur furðu hversu mikill undirlægjuháttur ríkir við þessa sjóði sem komu illa fram við okkur, nú þegar Vinstri grænir eru í forsæti í ríkisstjórn.

Þá vekur einnig athygli, herra forseti, áhugaleysi annarra stjórnmálaflokka á þessu mikilvæga máli. Ég nefni Samfylkinguna sem dæmi, hún hefur ekkert komið að þessu máli, ekki tjáð sig hér úr ræðustól fyrir utan einn varaþingmann, Einar Kárason, og virðist svo vera að annaðhvort skilji flokkurinn ekki mikilvægi þessa máls fyrir íslenskt efnahagskerfi, fyrir ríkissjóð, eða sé hreinlega áhugalaus um það. Auk þess kemur verulega á óvart afstaða Framsóknarflokksins í þessu máli, að Framsóknarflokkurinn, sem hefur gefið sig út fyrir að vera félagshyggjuflokkur, skuli ekki sjá hversu miklir hagsmunir liggja hér undir. Enginn þingmaður á vegum Framsóknarflokksins hefur tekið til máls hér hvað þetta mál varðar.

Frú forseti. Með þessu frumvarpi er verið að verðlauna þá sem neituðu að vinna með íslenskum stjórnvöldum. Það sjá það allir og það er ákaflega dapurlegt að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna skuli ekki viðhalda þessum skýru skilaboðum gagnvart vogunarsjóðunum sem einskis hafa svifist gagnvart íslenskum stjórnvöldum eins og við þekkjum og ég hef nefnt hér, meira að segja reynt að hafa áhrif á kosningar sem sýndi hversu langt þeir voru tilbúnir að ganga. Mál þetta snýst um það að stjórnvöld segi eitt og geri annað. Veðmál vogunarsjóðanna hafa gengið upp verði þetta frumvarp að lögum og það er á ábyrgð ríkisstjórnarinnar.