meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Frú forseti. Mér þykir hlýða að fara nokkrum orðum um þau meginsjónarmið sem hafa legið að baki þeirri umræðu sem haldið hefur verið uppi í þessu máli um alllanga hríð. Þau sjónarmið snúa í meginatriðum að nokkrum einföldum spurningum sem ekki verður talið annað en að séu eðlilegar í máli af þessu tagi. Hér hefur verið rifjað upp nokkrum sinnum að mjög var vandað til þess viðfangsefnis hvernig komast ætti út úr því óeðlilega ástandi sem hafði myndast hér í efnahagslegu og fjármálalegu tilliti eftir efnahagsáfallið sem við urðum fyrir haustið 2008. Hér hefur verið vísað til efnismikils rits ríkisstjórnar Íslands og Seðlabanka Íslands frá árinu 2015 þar sem mörkuð er stefna í þremur meginþáttum þess vanda sem við var að eiga þarna. Einn af þessum þáttum var þessar eignir sem höfðu safnast fyrir og sátu fastar sem afleiðing af gjaldeyrishöftunum sem voru eitt af bjargráðunum sem tekin voru upp í samstarfi okkar við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Það er rakið og liggur sem rauður þráður í gegnum þetta rit að leiðin til að vinna á þessum vanda, sem var ærinn, væri í gegnum gjaldeyrisuppboð og í gegnum eigendur þessara eigna sem vildu skipta þeim yfir í erlenda mynt og flytja þær úr landi með þeim hætti að þeir ættu kost á því að kaupa gjaldeyri í gjaldeyrisuppboðum með nánar tilgreindum hætti. Allt var þetta afar vandað og lagður að þessu afar traustur grunnur, m.a. fenginn fræðimaður, prófessor frá Oxford-háskóla, sem Englandsbanki og Seðlabanki Bandaríkjanna höfðu áður leitað til. Síðan var gert ráð fyrir því að Seðlabanki Íslands annaðist framkvæmdina. Það stendur þannig á að uppboð geta verið með margvíslegum hætti. Uppboð eru leið til að framkalla verð í ákveðnu tilliti og það sem þarna lá fyrir var að haga þessum uppboðum með þeim hætti sem best þótti henta miðað við þessar aðstæður og þess vegna var þessi sérfræðilega ráðgjöf fengin að verkinu. Í meginatriðum gekk þetta eftir og þeir 1.200 milljarðar, sem hér hafa verið rifjaðir upp, hafa saxast niður í 84 milljarða og málið snýst um þá, eins og þeir eru tilgreindir í sérstakri töflu í greinargerð með frumvarpinu sem hér er til umfjöllunar.
Fyrsta spurningin í málinu er ósköp einfaldlega: Af hverju, þegar þessir 84 milljarðar standa út af, er vikið frá markaðri braut frá árinu 2015 sem svo vandlega og traustlega var mörkuð á þeim tíma? Það lýsir náttúrlega miklum metnaði að kalla hér til fræðimenn á heimsvísu „svo undirstaðan sé réttlig fundin“, eins og segir hjá blessuðu sálmaskáldinu. Þetta er fyrsta spurningin. Ég verð að viðurkenna, frú forseti, að ekki hefur borið mikið á því að fram hafi komið svör við þessari spurningu. Þessari spurningu er ósvarað.
Næsta spurning, sem sömuleiðis verður að telja eðlilega, er: Hvers vegna er það ekki skýrt í greinargerð eða í málflutningi hvers vegna ákveðið er að ekki bara hverfa frá þessari uppboðsleið heldur líka halda þannig á málum að horfið er frá því að þeir aðilar sem um ræðir taki á sig nokkurn kostnað fyrir það að mega njóta þess að komast með eignir sínar úr landi eins og þeir hafa gert sem losuðu 1.100, eða hvað þeir nú eru, milljarða sem nú þegar eru farnir?
Það er útskýrt í þeirri stefnumörkun sem þarna liggur fyrir, af hálfu ríkisstjórnar Íslands og Seðlabanka Íslands, frá 2015 að slíkir aðilar eru nefndir upp á gamla og góða sveitamannavísu eftirlegukindur og er það vel til fallið en markmiðið var að menn myndu ekki njóta ávinnings af því að setja sig í þá stöðu. Sú eftirgjöf sem nú blasir við að er í boði ríkisstjórnarinnar og þorra stjórnarandstöðunnar, að því er virðist, er ekki skýr. Það er ekki einu sinni lagt fram, og er það út af fyrir sig skiljanlegt, tölulegt mat á því hvaða fjárhæðum þessi eftirgjöf gæti numið en menn geta auðvitað séð það í hendi sér, miðað við gengi sem hefur tíðkast í þessum uppboðum, að um verulegar fjárhæðir er að tefla.
Ég leyfi mér að segja, frú forseti, að það er ekki bara ríkisstjórnin sem skuldar skýringar, það verður sömuleiðis að ætlast til þess af öðrum flokkum, af þeim flokkum í stjórnarandstöðunni sem raunverulega styðja þetta mál, og þá ekki síst þeim sem segjast bera hag örbjarga fólks fyrir brjósti, að þeir skýri af hverju þeir álíti að ríkissjóður sé aflögufær um slíkar fjárhæðir í þágu þeirra aðila sem um ræðir.
Það eru fleiri spurningar sem vakna í þessu máli og ekki hafa komið fram svör við, a.m.k. ekki í þingsalnum, m.a. um tölulegt mat á áhrifum á lykilþætti í efnahagslífi okkar eins og gengi krónunnar með þeim afleiðingum sem það hefur á verðlag, með þeim afleiðingum sem það hefur á þessa vísitölu sem er hið heilaga gral í íslensku fjármálakerfi. Ekkert er um þetta og ekki vikmörk, ekki sviðsmyndir, ekki nokkur skapaður hlutur, og sömuleiðis er ekki verið að eyða pappírnum í það að fjalla um áhrif á gjaldeyrisforða landsmanna og aðra slíka þætti. Ég minni á að forsendur um verðlag og gengi liggja til grundvallar þýðingarmestu skjölum, áformum og áætlunum sem ákvarðanir eru teknar um hér, þ.e. í ríkisfjármálunum. Þar erum við með fjármálaáætlun sem er reist á slíkum forsendum og alveg nauðsynlegt að fjallað sé um það, þegar um svona viðamikla aðgerð er að ræða, hvaða afleiðingar þær aðgerðir gætu haft á grundvallarforsendur í fjármálaáætlun.
Ég ætla ekki að eyða neinum tíma, frú forseti, í að fjalla um það sem kalla mætti falskar eða innantómar röksemdir sem hefur verið teflt fram í þessu máli. Ég ætla hins vegar að leyfa mér að segja að ég tel að menn eigi að fara með gát og ganga hægt um gleðinnar dyr þegar kemur að því að nota orð eins og eignarnám, eignaupptaka og annað af því tagi. Þetta eru stóralvarlegir hlutir. Þetta eru málefni sem eru traustlega vörðuð í þeim fræðum lögvísindanna sem um þau fjalla og það hefur ekki mikinn trúverðugleika þegar menn sem kannski hafa ekki getið sér sérstakt orð fyrir yfirburðaþekkingu á þeim vísindum og fræðum öllum kasta þeim svona fram og ætlast til þess að aðrir fari að verjast slíkum upphrópunum því að auðvitað eru þetta ekkert annað en upphrópanir.
Að lokum, frú forseti, vil ég nefna það atriði sem hér hefur komið nokkrum sinnum upp, að þetta mál má ekki verða til þess að þau skilaboð séu send út að íslensk stjórnvöld séu þannig að ef menn eru bara nógu frekir og ágengir geti menn sveigt þau af markaðri stefnu í þýðingarmestu málum þjóðarinnar. Þess er skemmst að minnast að íslenska þjóðin lét ekki bjóða sér yfirgang erlendra aðila. Íslenska þjóðin tók í tvígang ákvörðun um það í þjóðaratkvæðagreiðslu að standa af sér slíkan ágang og slíka ágengni og frekju og yfirgang og yfirtroðslu og valdníðslu.
Ég ætla að leyfa mér, frú forseti, að vekja athygli hv. þingmanna á stórmerku viðtali við fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins í Morgunblaðinu í dag. Talað er við dr. Baudenbacher, sem m.a. fjallar um Icesave-samningana sem hann hefur kynnt sér og sem komu til kasta EFTA-dómstólsins; hann lýsir því sem einu stærsta máli sem fyrir þennan dómstól hafi komið. Hvað segir dr. Baudenbacher í viðtali við Morgunblaðið í dag? Hann segir Icesave-samningana hafa verið mjög einhliða og ritaða á máli Versalasamninganna. Þetta eru orð dr. Baudenbachers í Morgunblaðinu í dag. Ég ætla að leyfa mér að segja það, frú forseti, að þeir sem hvað ákafast hvöttu til þess að þessir samningar, sem dr. Baudenbacher, forseti EFTA-dómstólsins, lýsir sem einhliða, meira að segja mjög einhliða, og rituðum á máli Versalasamninganna, samninga gagnvart gjörsigraðri þjóð eftir fimm eða sex ára heimsstyrjöld — hann lýsir þeim samningum sem okkur var boðið upp á með þessum hætti. Ég held að menn ættu aðeins að íhuga málið í því ljósi og ég ítreka hvatningu mína til hv. þingmanna um að kynna sér þetta gagnmerka viðtal og íhuga hvaða lærdóma megi af því draga.