149. löggjafarþing — 72. fundur,  28. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[12:34]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Frú forseti. Ég ætla að láta það eftir mér að segja hérna nokkur orð. Ég vil taka fram að ég mun ekki ræða sérstaklega þetta frumvarp og ekki blanda mér í deilur um ágæti þess, læt það eftir þeim sem nú eru virkari á vellinum en ég. Mér finnst vanta nokkuð upp á dýpt sögulegrar nálgunar í þessu máli, nú þegar við erum vonandi að komast á lokametrana í afnámi sérstakra fjármagnshafta og ástandið getur í kjölfarið orðið fullkomlega eðlilegt og út úr heiminum hverfa innilæstar aflandskrónur sem búið hafa við allt annað gengi en skráð er á markaði o.s.frv.

Tímatalið hófst ekki í þessum efnum 2015 eða 2016, það hófst ekki einu sinni 2008 með hruni bankanna. Það á sér enn lengri bakgrunn þar sem hér hefur verið við að glíma á Íslandi sl. tíu ár í þessum efnum. Það á sér aðallega uppsprettu í því að Ísland opnaði sinn fjármagnsmarkað og varð hluti af Evrópska efnahagssvæðinu og hlítti þeim reglum. Bankar voru einkavæddir og þöndust út og vextir á Íslandi voru háir. Lánshæfismat landsins var gott. Þess vegna fór það að freista fjárfesta að gera út á vaxtamuninn milli Íslands og annarra landa og hér hófust umtalsverð vaxtamunarviðskipti, með leyfi forseta, „carry trade“, eins og það er stundum kallað. Fyrstu fjármunirnir fóru að koma inn í hagkerfið á árunum 2004–2005 í þessum efnum. Eins og á svo mörgum öðrum sviðum voru menn steinsofandi á Íslandi fyrir þeirri hættu sem þar gæti verið að byggjast upp að erlendir aðilar sem voru endanlegir eigendur, „beneficiaries“, að innlendu krónueignum myndu fyrr eða síðar vilja þær út úr landinu aftur og ávöxtunina á þeim.

Þarna byrjar að byggjast upp gjaldeyrisójafnvægi og gjaldeyrisáhætta fyrir íslenskt hagkerfi. Haustið 2004 voru þetta um 40 milljarðar kr. og ég fékk fulltrúa úr gjaldeyrisdeild Landsbankans á fund þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs til að ræða við þá um hvort þetta væri ekki varhugavert. Hvernig var þetta með kreppuna í Litlu-Asíu? Fór þetta ekki illa með menn, þetta fyrirbæri, þetta gráðuga skammtímaáhættufjármagn sem sækir inn í lönd og vill ávaxtast við svona aðstæður? — Nei, nei, þeir töldu nú ekki ástæðu, spekingarnir, til að hafa áhyggjur af þessu, þetta væri það lítið o.s.frv. Og svo fór sem fór.

Í lok árs 2008 og byrjun árs 2009 var reynt að slá mati á hver stærð snjóhengjunnar væri. Hún var upphaflega yfir 700 milljarðar kr., yfir 40% af vergri landsframleiðslu á þágildandi verðlagi og snjóhengjan, jöklabréfin sem voru stór hluti af því, samanstóð eftir hrun bankanna og eftir að fjármagnshöftin voru sett á, aðallega af tvennu, þ.e. sá hluti vandans: Það voru innlendar eignir, krónueignir í eigu erlendra aðila inni í íslenska hagkerfinu, snjóhengjan, jöklabréfin, og það voru íslenskar krónur, íslensk eignasöfn í eigu erlendra aðila úti eða veðsettar erlendum aðilum. Þetta til samans var á áttunda hundrað milljarða króna. Þessi vandi lá nokkuð ljóst fyrir strax þarna, en um hitt sem síðar kom til sögunnar, þ.e. gjaldeyrisójöfnuðinn í uppgjöri búanna, var mjög lítið vitað á þessum tíma.

Ég spurði oft að þessu sem fjármálaráðherra þarna. Svarið var: Við vitum það ekki, en menn vonuðu að það væri tiltölulega lítill gjaldeyrisójöfnuður í uppgjöri gömlu búanna. Annað átti eftir að koma í ljós. Menn sneru sér strax að þessum vanda og í þeim skilningi líka, frú forseti, byrjaði tímatalið ekki 2015 eða 2016. Það byrjaði strax 2009. Menn fóru strax að glíma við þetta mál, settu niður fyrstu áætlanirnar um hvernig þetta yrði gert, vissulega innan ramma fjármagnshaftanna. Það var öllum ljóst að þennan vanda yrði með einhverjum hætti að vinna niður af því að sú framtíðartilhugsun var skelfileg að svona gjaldeyrisójöfnuður yrði áratugastaðreynd á Íslandi. Hvað hefði það þýtt ef menn hefðu ekki sett sér að vinna þennan vanda niður á tiltölulega skömmum tíma og komast út úr honum?

Hinn valkosturinn var að búa við það áratugum saman að þrýstingur væri á íslensku krónuna vegna ójafnvægis sem menn tækju sér langan tíma til að vinna niður á markaði, vegna þess að gjaldeyrissköpun landsins, greiðslujöfnuðurinn, bauð auðvitað ekki upp á að útleysa þennan vanda með eðlilegum hætti yfir markað nema á fleiri áratugum með miklum fórnarkostnaði fyrir hagsmuni íslensks þjóðarbús, almennings og fyrirtækja. Auðvitað sneru menn sér að því að smíða einhverjar áætlanir um hvernig hægt væri að vinna okkur út úr þessu og komast í eðlilegt ástand á skikkanlegum tíma plús það að við vorum samningsbundin og erum samningsbundin til að gera það. Og við lofuðum því í samstarfinu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn að auðvitað myndum við reyna að vinda niður af fjármagnshöftunum og komast í eðlilegt ástand eins fljótt og hægt væri.

Fyrsta stóra áætlunin og samþykkt áætlun um afnám gjaldeyrishafta var samþykkt í mars 2011. Hún var ekki til 2015 eins og einhverjir halda. Á undan henni voru áætlanir sem ekki voru eins fastar í sessi, sem m.a. voru unnar í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Strax á árinu 2010 ávinnst mjög mikið í þessum efnum og þar ber náttúrlega höfuð og herðar yfir allt stærstu einstöku viðskiptin þangað til kom að upplausn þrotabúanna, sem voru liður í lausn þessa máls, svonefnd Avens-viðskipti. Út á hvað gengu þau? Þau gengu út á að kaupa heim aftur til Íslands gríðarlega verðmæt og stór eignasöfn sem lent höfðu í höndum erlendra aðila af því að þau voru lögð að veði fyrir viðskiptum í lausafjárþrengingum bankanna á misserunum fyrir hrun. Það voru lán til íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja, það voru húsbréf, ríkisskuldabréf og innlendar krónueignir. Þessi stóru viðskipti tókust á miðju ári 2010, Avens-viðskiptin svokölluðu. Þá kaupir íslenska ríkið í samstarfi við íslenska lífeyrissjóði heim þetta eignasafn frá Evrópu upp á 120 milljarða kr. Og af því að menn tala hér dálítið um hvað sé sanngjarnt gengi í svona uppgjörum, jafnvel nú til dags, spyr ég: Hvað haldið þið að við höfum fengið fyrir evruna í þessum viðskiptum, ríkið og lífeyrissjóðirnir? 288 kr. Vilja menn kannski nota það í dag? (Gripið fram í.) — Akkúrat, það væri gaman að geta farið alla leið þangað. Þá yrði heldur betur hagnaður af þessu.

Fleiri tvíhliða viðskipti voru á árinu 2010 þannig að 150 milljarðar voru losaður út úr snjóhengjunni með aðgerðum af þessu tagi, bara á því ári. Síðan hefur Seðlabankinn, samkvæmt áætlun um afnám fjármagnshafta frá 2011, útboð á gjaldeyri eða uppboð og þau standa yfir samfellt frá árinu 2011 til 2015. Og í gegnum þau er snjóhengjan unnin niður um tæpa 140 milljarða og gegnum undanþágur sem veittar voru á fjárfestingarleiðina bættust við aðrir 25 þannig að þegar þarna kemur er búið að meira en helminga upphaflegu snjóhengjuna. Hún er komin niður um eina 335 milljarða kr. og eftir standa 319. Þegar frumvarpið var lagt fram um aðgerðirnar sem við erum nú að breyta er eftirstaðan 319 milljarðar, eins og hér hefur áður komið fram í umræðunni.

Ég er bara að rekja þetta, frú forseti, til að setja hlutina í sitt rétta sögulega samhengi. Það er alltaf kostur að horfa yfir málið eins og það hefur gengið fyrir sig í heild. Upphafspunkturinn er þarna — auðvitað má segja í einkavæðingu bankanna og öðru slíku, en í raun er upphafspunkturinn innleiðing vaxtamunarviðskiptanna á Íslandi á árunum 2004–2005.

Síðan er það hinn hluti vandans. Hver er hann? Hann er uppgjör fallinna fjármálafyrirtækja vegna þess að í eignasöfnum búanna eru íslenskar eignir. Framan af vissu menn ekkert hvað þær væru miklar. Af hverju er þetta vandamál? Eru þetta ekki íslensk þrotabú, gerð upp á Íslandi? Jú, en endanlegir eigendur eignanna, verðmætanna út úr búunum, eru kröfuhafarnir. Þeir eru að uppistöðu til erlendir. Þess vegna varð það líka að hluta vandans, í raun og veru að hluta snjóhengjunnar, og vegna þess að efnahagsleg endurreisn Íslands gekk vel og vegna þess að þessar íslensku eignir reyndust almennt verðmætari en menn höfðu reiknað með var þessi vandi vaxandi. Hann jókst að umfangi samfellt frá því að menn fóru fyrst að gera sér grein fyrir því að það væri yfir höfuð einhver gjaldeyrisójöfnuður í búunum. Það er ekki fyrr en á árunum 2010 og 2011.

Það er í raun og veru ekki fyrr en um mitt ár 2012 sem Seðlabankinn er kominn með góða greiningu á stærð þessa hluta vandans. Þá þegar er öllum ljóst að einnig þessi hluti verður aldrei leystur út úr hagkerfinu nema íslensku eignirnar verði verðfelldar verulega. Það er heldur ekki uppfinning, frú forseti, frá 2015 eða 2016. Í öllu þessu ferli hefur það alltaf verið útgangspunkturinn að þær innlendu eignir sem svona urðu til, voru læstar inni bak við fjármagnshöftin eða voru inni í búunum, yrðu ekki leystar út úr hagkerfinu nema stórkostlega niðurskrifaðar. Annað væri ekki hægt. Hinn valkosturinn var að þær yrðu hér um áratugi og að við sætum áratugi í fjármagnshöftum. Þetta var bara svona, þetta var öllum ljóst, samanber gengið á Avens-viðskiptunum. Hvað segir það okkur að við fengum 288 kr. fyrir hverja evru? Það var auðvitað bara stórkostleg niðurskrift á þeim verðmætum í reynd. Hinn erlendi eigandi þeirra fékk varla hálfvirði fyrir þær þegar þær voru keyptar heim til Íslands.

Sama gildir um gjaldeyrisuppboðin o.s.frv. Þegar þessi mynd liggur sæmilega ljós fyrir 2012 segir seðlabankastjóri: Þessar eignir verða ekki losaðar út úr hagkerfinu nema þær verði verðfelldar um a.m.k. 70%. Það lá alltaf ljóst fyrir. Viðfangsefnið var bara hvernig.

Þá kem ég að öðru sem verður að fá að fljóta með, frú forseti, sem var algert lykilatriði í þessu öllu saman til þess að við gætum síðan gert upp búin og losnað við þau. Það er breyting á lögum hér í marsmánuði 2012 þegar eignir gömlu búanna eru teknar og settar inn fyrir fjármagnshöftin. Þar höfðu þær ekki verið. Þá er komin sú staða á búin, búið að vinna úr málum og dómsmál að baki og annað því um líkt, að það er að styttast í útgreiðslur. Og þá var ekki spanderað tímanum því að frumvarpið var lagt fram og sýnt hér eftir lokun markaða og gert að lögum rétt um miðnætti. Hefðum við ekki þarna að næturlagi sett eignirnar inn fyrir búin hefðum við enga samningsstöðu haft í því máli. Það voru ekki bara þessar miklu innlendu eignir sem höfðu hlaðist upp í búunum sem færðar voru inn fyrir höftin, það voru allar eignir búanna, líka erlendar, af því að þetta voru íslensk bú í íslenskri lögsögu. Þar með var samningsstaðan orðin sterk því að þar með höfðum við tök á því að engar útgreiðslur gengju til erlendu kröfuhafanna nema það samrýmdist efnahagslegum stöðugleika, hvorki innlendar né erlendar eignir yrðu greiddar út nema það væri hluti af einhverri heildaráætlun, nema þá að veittar væru undanþágur.

Og talandi um hetjur sem standast þrýsting erlendra kröfuhafa man ég vel ástandið í þinghúsinu og í kringum þinghúsið þetta kvöld og þessa nótt. Það var umsátur um þinghúsið af erlendum kröfuhöfum og sumir þeirra sluppu inn af því að þeir voru vel tengdir, en við létum okkur ekki og við gerðum þetta. Sú eina málamiðlun var gerð að lausar eignir sem þá þegar voru í búunum í erlendri mynt fengu að fara samkvæmt sérstakri stýringu Seðlabankans en allar aðrar eignir, sem voru gríðarlegar eins og menn vita, voru læstar inni. Þar með myndast samningsstaðan sem leggur síðan grunninn að því að við getum látið þá sæta annaðhvort stöðugleikaframlögum eða stöðugleikaskatti. Grunnurinn er lagður með þessari löggjöf og ég má ekki til þess hugsa ef við hefðum ekki gert þetta þarna. Í raun voru það síðustu forvöð. Ef gagnrýna á eitthvað, sem myndi þá beinast að mér eða Seðlabankanum, væri það að við skyldum ekki fara fyrr í þessa aðgerð. En það reyndi í sjálfu sér ekki sérstaklega á það og hún reyndist koma nógu snemma til að búa til þá stöðu sem síðar gagnaðist okkur vel.

Heildarniðurstaðan er sú, frú forseti, að allir geti ágætlega við sinn hlut unað í þessu máli að mínu mati. Og allir flokkar og allar ríkisstjórnir sem komið hafa að málum á Íslandi frá því að neyðarlögin voru sett 2008 til dagsins í dag eiga sinn góða hlut í því að Ísland er komið á þann prýðilegan stað sem það er á. Auðvitað eru aðstæður svo gjörbreyttar að það hálfa væri nóg. Við erum með góðan hagvöxt síðan 2011, við eigum 500–600 milljarða óskuldsettan gjaldeyrisvaraforða. Það litla sem hér er eftir til að hreinsa þetta mál út og komast í eðlilegt ástand eru þvílíkir smámunir, borið saman við allt hitt sem menn voru að glíma við þegar vandinn var mestur að það hálfa væri nóg. Þannig að ég tek undir það með hv. þm. Óla Birni Kárasyni, formanni efnahags- og viðskiptanefndar, að auðvitað ætti að vera hér bros á hverjum manni. Það er stórkostlegt að Ísland sé komið í þá stöðu (Forseti hringir.) að við getum hreinsað þessar leifar burtu og haldið glöð út í daginn. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)