149. löggjafarþing — 72. fundur,  28. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[12:50]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Mig langar nú þegar að líkindum glittir undir lok þessarar umræðu um það mál sem hér liggur fyrir að taka örlítið saman þau sjónarmið sem ég hef hið minnsta talað fyrir í umræðunni. Það kom fram hjá hæstv. forseta Alþingis í ræðunni á undan að aðstæður væru allar aðrar í dag en þegar gripið var til þessara aðgerða og að hér væri um að ræða hreina smámuni í samhengi við heildarmyndina. Vissulega er hlutfallið lágt af 1.200 milljörðunum sem lagt var til atlögu við og kynnt hvaða vegferð væri farið í hinn 8. júní 2015, ef ég man dagsetninguna rétt. Þetta eru ekki nema 7% af þeirri upphæð en ég hef gagnrýnt í umræðunni að það eitt að víkja frá því plani sem þar var lagt upp með er til þess fallið að valda okkur tjóni á síðari stigum, ekki vegna þessa máls heldur munu koma upp flókin og snúin mál síðar þar sem menn þurfa að standa í stafni og verja innlenda hagsmuni og þá er ekki gott að hafa fennt út það merki að þegar meginhluti prógrammsins er um garð genginn sé í lagi að kalla þetta gott, menn séu orðnir saddir, ástandið sé breytt og því sé ástæða til að klára ekki síðasta hluta plansins. Þetta eru vond skilaboð. Þetta er nálgun sem menn munu auðvitað muna eftir þegar frá líður og hún mun orsaka það að við verðum ekki í eins sterkri stöðu gagnvart gagnaðilum okkar þegar kemur að síðari tíma slagsmálum í hagsmunagæslu fyrir stjórnvöld.

Þrátt fyrir að þetta séu kallaðir smámunir eru þetta þannig tölur að væri þessi 84 milljarða stabbi hanteraður á grundvelli þeirra talna sem taldar voru ásættanleg kjör þegar prógrammið er sett af stað væri hér um að ræða 23 milljarða miðað við gengi dagsins í dag. Gengi dagsins í dag er nokkurn veginn alveg það sama á evru, seðlabankagengið, og það var þegar prógrammið var sett af stað. Mér sýnist þar muna rétt um prósenti. Ég held að allra hluta vegna hefði verið skynsamlegt að klára planið eins og lagt var upp með. Það eru engar þær stórkostlegu breytingar orðnar hvað efnahagslega umhverfið varðar síðan EFTA-dómstóllinn komst að niðurstöðu sinni í lok árs 2016 sem kalla á að réttarfarsleg staða okkar gagnvart málinu sé gjörbreytt. Það held ég að sé bara mat sem stenst illa skoðun. Að mörgu leyti má segja að efnahagsleg staða okkar með fyrirsjáanlegan vöxt, þróun í ferðamannaiðnaði og fleira hafi verið jákvæðari í lok árs 2016 en færa má rök fyrir að sé akkúrat núna með þá óvissuþætti sem uppi eru í umhverfinu.

Þetta er það sem ég vildi segja um skilaboðin og undirliggjandi tölur í þessu. Þetta er lokahnykkurinn sem má segja að menn ákveði nú með væntanlegri samþykkt þessa frumvarps að taka ekki og mér þykir það miður.

Það hefur verið mjög athyglisvert að fylgjast með umræðunni út frá því hversu alger þögnin var frá öllum meiri hluta stuðningsmanna þessa frumvarps. Hvað veldur hefur mér þótt sérstaklega undarlegt því að margir þeirra sem hæst hafa þagað, ef svo má segja, hafa haldið innblásnar ræður í pontu um að þar séu gefnar eftir tekjur ríkissjóðs, verið sé að gefa hinum og þessum hópunum milljarða hér og milljarða þar. Þær ræður eru helst fluttar í samhengi við vinnu við fjárlög eða fjármálaáætlun ríkisstjórnar. Það er öskrað hátt og oft að útgerðarmönnum séu gefnir milljarðar, hátekjufólki séu gefnir milljarðar o.s.frv. Við þekkjum öll slíka ræður. Núna er miðað við það upplegg að þeim krónueigendum sem enn eiga þessar upphæðir er fullljóst að þetta var planið og það eina sem kæmi þeim á óvart núna miðað við þessa lúkningu er auðvitað að þeir hafi unnið fullnaðarsigur hvað þennan lokahluta stabbans varðar. Enginn þeirra þingmanna sem hæst hefur kallað þegar því er haldið fram að verið sé að gefa milljarða út og suður í fjárlagavinnu hverju sinni hafa gert nokkrar einustu athugasemdir við að menn afsali sér þeim mögulegu tekjum sem voru rammaður inn með þeirri — við skulum kalla það réttu orði — þvingunaraðgerð sem gengið var til um mitt ár 2015. Enginn. Ræðurnar hafa verið ein ræða frá hæstv. fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssyni, þrjár ræður frá framsögumanni nefndarinnar, hv. þm. Óla Birni Kárasyni, og ein ræða frá hæstv. forseta Alþingis, Steingrími J. Sigfússyni. Ég held að ég sé ekki að gleyma neinum stjórnarþingmanni eða þeim fulltrúum stjórnarandstöðunnar sem virðast styðja málið. (SJS: Það gætu verið þrjú andsvör.) Já, það er bitamunur en ekki fjár í heildarmyndinni. Ég er alveg til í að taka það á mig að ég hafi gleymt að tilgreina ein þrjú andsvör eða svo.

Þetta vakti auðvitað athygli og það hefði verið til mikilla bóta fyrir umræðuna hefðu þótt ekki væru nema þeir sem gerst þekkja til málsins tekið þátt í henni hérna. Málið er þannig vaxið að þetta er pólitísk ákvörðun, þetta er ekki ákvörðun um að fara þessa leið sem er tekin uppi í Seðlabanka eða eitthvað þess háttar. Þetta er pólitísk ákvörðun og þess vegna er það alveg sjálfsagður réttur þeirra þingmanna sem hafa efasemdir um málið, ja, það er svo sem ekki réttur, menn hafa rétt til að tjá sig ekki um málið, en mér hefði þótt það skynsamlegt af stuðningsmönnum þessa máls að tjá sig meira á fyrri stigum þess. Það hefði einfaldlega bætt umræðuna mikið. Það hefði auðveldað okkur hjá Miðflokknum að koma þeim sjónarmiðum okkar almennilega á framfæri, sem ég held að megi segja að hafi verið römmuð inn í ræðu hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, við upphaf umræðunnar í dag þar sem hann mælti fyrir séráliti sínu, nefndaráliti. Það hefur ekkert komið fram, að því er mér sýnist, á nefndarfundinum í gær né heldur í umræðunum í dag, sem dregur úr nokkru þeirra atriða sem við höfum haft mestar áhyggjur af. Um þau atriði hefðum við svo gjarnan viljað eiga samtal við stuðningsmenn þessa frumvarps í þingsal.

Það er eitt atriði sem ég vil minnast á í lokin sem mér hefur þótt undarlegt að sjá. Í frumvarpinu er liður 6.4. sem fjallar um áhrif á ríkissjóð af málinu. Ég hef nokkrum sinnum gagnrýnt framsetningu fjármálaráðuneytisins eða fjármálaráðherra þegar kemur að því að meta kostnaðarleg áhrif á gjaldahlið eða tekjuhlið vegna aðgerða sem ræddar eru við vinnslu fjárlaga. Nú bregður svo við að menn taka þá pólitísku ákvörðun að þarna fari einn hópur, sá hópur aflandskrónueigenda sem mest skirrtist við hvað það varðar að vinna með stjórnvöldum, út án þess að greiða fyrir neitt gjald. Í lið 6.4. kemur fram að þetta hafi engin áhrif á ríkissjóð. Ég vil segja þetta hér til að halda því til haga því að það er auðvitað þannig að til framtíðar finnst mér að vera þurfi einhver lína í því hvernig svona lagað er framsett og hanterað, því að þetta skiptir máli fyrir okkur þingmenn þegar kemur að því að meta framlögð gögn eins og hér er um að ræða.

Bara eitt atriði í lokin. Því hefur verið haldið fram í umræðunni að réttarstaða okkar væri veik, aðstæður hefðu allar breyst svo mikið síðan um mitt ár 2015, að ef haldið hefði verið við planið sæjum við fram á að tapa því öllu fyrir dómstólum. Hvað það varðar er ekkert sem bendir til þess að svo sé sem fram hefur komið. Niðurstaða EFTA-dómstólsins var alveg skýr í lok árs 2016, það hefur ekkert stórkostlegt breyst síðan þá hvað þessi atriði varðar og við eigum, eins og við höfum sagt hér í umræðunni, að hafa kjark og þor til að standa í lappirnar hvað hagsmunagæslu sem þessa varðar fyrir ríkissjóð og íslenska þjóð.