meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Frú forseti. Á sínum tíma gerðu stjórnvöld ákveðna áætlun um losun hafta sem gekk út á það að eigendum krónueigna sem sátu hér fastir með sínar eignir var boðið að losa þær út með greiðslu framlags, þ.e. að þeir tækju þátt í endurreisn íslensks efnahagslífs. Ef þessir aðilar hefðu séð minnsta vott um hik á íslenskum stjórnvöldum hefðu þeir auðvitað ekki stokkið á vagninn eins og margir þeirra gerðu í þeirri von að þeim yrði síðan veglega umbunað. Það er algerlega fyrirsjáanlegt að ef gefið hefði verið í skyn við þessa aðila að þeir gætu losnað úr höftum með því að bíða hefði allt mistekist. En hvað er að gerast núna?
Furðulegast af öllu er að Samfylkingin, Viðreisn, Píratar og þeirra fylgitungl hafa enga skoðun í þessu máli og ætla að fylgja stjórnarflokkunum þremur eftir í þeirri vegferð sem felst í þessari uppgjöf, þessir flokkar sem koma oft upp í pontu og kalla eftir auknu fjármagni í alls kyns þarfa hluti en hafa svo ekki bolmagn, vilja eða þrautseigju til að spyrna við þegar stjórnvöld þeyta lúðra til skipulegs undanhalds (Forseti hringir.) fyrir fjármagnseigendur.