149. löggjafarþing — 72. fundur,  28. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[13:34]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég get ekki setið undir ummælum hv. þingmanns um þetta mál. Staðreyndin er sú að Miðflokkurinn hefur varið hér hátt í 20 tímum eða þar um bil í tóma vitleysu, innihaldslaust þvaður um þetta mál. Það kom skýrt fram á fundi efnahags- og viðskiptanefndar með Seðlabankanum í gærkvöldi þar sem farið var yfir málið vandlega að nýju. Það hefði kannski sparað þinginu ómældan tíma ef formaður Miðflokksins hefði setið fyrri fundinn með Seðlabankanum. Staðreyndin er sú að sú sögufölsun sem Miðflokkurinn er að reyna að draga upp á sér enga stoð í veruleikanum, að tala um að aðrir flokkar séu á undanhaldi eða í uppgjöf. Hér er einfaldlega um að ræða eðlilegt framhald á haftalosun, mikilvægri og vel heppnaðri haftalosun, og ég styð það eðlilega framhald heils hugar. (Forseti hringir.) Þetta er skynsamlegt og nauðsynlegt skref. Við viljum á endanum að hér sé höftum aflétt en ég sit ekki undir þessu bulli sem Miðflokkurinn hefur boðið okkur upp á undanfarna tvo sólarhringa eða svo. (Forseti hringir.) Það er ekki sannleikskorn í þeirri sögufölsun sem þar er verið að reyna að draga upp. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)