meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Frú forseti. Samfylkingin getur ekki frekar en fyrri ræðumaður tekið undir málflutning Miðflokksins, enda hafa sérfræðingar fært rök fyrir því á fundum efnahags- og viðskiptanefndar að hann stenst ekki skoðun. Sú leið sem Miðflokksmenn leggja til er með öllu ófær. Allar ríkisstjórnir hafa tekið þátt í áætlun um losun fjármagnshafta sem hófst formlega árið 2011 með áætlun ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur. Frumvarpið sem gerði framhaldið mögulegt var frumvarp sem samþykkt var í mars 2012, sem sumir hafa kallað minni neyðarlögin. Síðan hélt ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar áfram með málið og loks ríkisstjórn Viðreisnar, Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar. Nú er þessi ríkisstjórn að stíga þetta skref alveg rétt í lokin. Við erum ekki búin að lyfta höftunum að fullu en hér er verið að taka ákveðið skref við allt aðrar aðstæður en þegar við lögðum af stað — sem betur fer.