149. löggjafarþing — 72. fundur,  28. feb. 2019.

meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.

486. mál
[13:40]
Horfa

Smári McCarthy (P) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Frá hruni hafa allir flokkar sem hafa setið á Alþingi með sínum hætti reynt að vinna að lausn þeirra margvíslegu vandamála sem urðu til við hrunið og hafa staðið sig vel. Við erum með afskaplega fínt hagkerfi í dag vegna þess að björgunaraðgerðirnar voru að mestu góðar. Auðvitað koma einhver áföll og auðvitað eru ekkert allir alveg sammála, en raunin er að þetta skref er eitt af lokaskrefunum í áttina að því að við klárum þetta hrun. Auðvitað eru ýmisleg vandamál enn þá eftir í samfélaginu o.s.frv. og við munum klára þau líka.

En það að einn flokkur sé búinn að reyna í þrjá daga að eigna sér allan árangurinn er eiginlega frekar vandræðalegt. Við hljótum að geta þakkað öllum þeim flokkum, öllum þeim einstaklingum sem komu að björgun mála eftir hrun, vel fyrir það sem vel var gert og getum líka klárað þetta mál þannig að við getum haldið áfram og leyst svo önnur og stærri vandamál inn í framtíðina. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)