149. löggjafarþing — 72. fundur, 28. feb. 2019.
meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
486. mál
Frú forseti. Við erum að stíga mikilvægt skref sem samfélag til losunar hafta. Við erum ekki að klára dæmið en við erum að taka þetta skref í allt öðru umhverfi en þau skref sem hingað til hafa verið tekin. Það er fagnaðarefni og það er væntanlega von okkar flestra að íslenskt samfélag og íslenskt efnahagslíf geti haldið áfram á þeirri braut að við getum búið við boðlegar aðstæður fyrir alla þjóðina. Þetta skref er eitt skref í þá átt.