meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum og gjaldeyrismál.
Frú forseti. Það er mikið gleðiefni að fá að greiða atkvæði með þessu frumvarpi og segja já. Hér er ekki farið eftir embættismönnum eða þvingunum þeirra heldur einfaldri heilbrigðri skynsemi. Einföld, heilbrigð skynsemi hefur sameinast hér í þingsal nema að því er virðist í einum flokki, [Hlátur í þingsal.] (Gripið fram í: Hinum flokknum.) hinum flokknum. (Gripið fram í: … sama fólkinu.) Það er bara svoleiðis. En hér erum við þó samtaka um að búa til heilbrigt umhverfi til framtíðar í stað þess að hjakka í fari fortíðar. Þess vegna segjum við já, ekki vegna þess að við séum að fara eftir því sem embættismenn segja — þið getið haldið því fram, Miðflokksmenn, félagar mínir — en það er hin heilbrigða skynsemi sem segir okkur að við eigum og að okkur beri skylda til þess að segja já við framtíðina. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)