149. löggjafarþing — 72. fundur,  28. feb. 2019.

staða sveitarfélaganna á Suðurnesjum.

187. mál
[14:19]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka flutningsmanni fyrir þessa tillögu. Það er ánægjulegt að sjá að allir þingmenn Suðurkjördæmis, þar með talinn sá sem hér stendur, eru á henni. Það er gott að sjá þá samstöðu sem ríkir í þingmannahópnum hvað þetta varðar. Því miður hefur ekki verið nægileg samstaða meðal þingmanna í þessu máli sérstaklega, þ.e. að rétta hlut Suðurnesja hvað varðar lögbundin framlög frá ríkinu. Sá sem hér stendur hefur flutt tillögur við fjárlög og einnig við fjármálaáætlun um að rétta þann hlut sem hefur því miður ekki gengið eftir. Ég vil þó þakka hv. þm. Oddnýju G. Harðardóttur fyrir að hafa stutt tillögur mínar en einhverra hluta vegna hafa stjórnarþingmenn ekki viljað styðja þær tillögur. Ég hefði viljað sjá fleiri stjórnarþingmenn koma hér í þessa umræðu.

Það er svolítið athyglisvert, sem hv. þm. Oddný G. Harðardóttir nefndi áðan, að þegar tillagan var flutt síðast var hún komin í nefndina og stóð til að afgreiða hana þar en einhverra hluta vegna gerðist það ekki. Það vekur spurningar um hvort menn séu í einhverjum pólitískum loftfimleikum hvað þetta mál varðar, sem er mjög dapurlegt. Það er svo sannarlega full þörf fyrir þessa tillögu sem er vel unnin og skýr og leggur áherslu á að sett verði fram tímasett aðgerðaáætlun um hvernig megi efla þjónustu ríkisins við íbúa á Suðurnesjum, ekki síst vegna þeirrar miklu fólksfjölgunar sem hefur átt sér stað.

Þessi aðgerðaáætlun felst í því að styrkja samfélagið sem þarna er. Fólksfjölgunin, eins og rakið er í tillögunni, er ótrúlega mikil. Við erum að tala um 5.000 manns á sex árum sem er mjög há tala. Það verður að segjast eins og er að það er aðdáunarvert hve sveitarfélögin á Suðurnesjum hafa þó staðið sig vel miðað við erfiðar aðstæður og ber að hrósa þeim fyrir það. Það þarf að veita þessum stóra hópi margvíslega þjónustu á sama tíma og lögbundin framlög ríkisins til þeirrar þjónustu hafa ekki verið í takt við hina miklu fólksfjölgun. Það segir manni að ríkið er allt of svifaseint í því að bregðast við þegar slík fólksfjölgun verður á skömmum tíma. Það má geta þess að Reykjanesbær er orðinn fjölmennara byggðarlag en Akureyri, svo að dæmi sé tekið.

Í tillögunni er rætt um það þegar Bandaríkjaher yfirgefur landið 2006 með þeim erfiðleikum sem því fylgdu fyrir samfélagið. Það var gríðarlegur fjöldi starfsmanna sem vann þarna. Talað er um 600 störf, en þau voru í raun og veru fleiri vegna þess að mörg afleidd þjónustustörf voru í tengslum við varnarliðið. Í tillögunni segir að ríkið hafi ekki gefið eftir fasteignagjöld að fullu til Reykjanesbæjar þrátt fyrir að Reykjanesbær hafi verið farinn að þjónusta þetta svæði; sem segir náttúrlega sitt um hugarfar ríkisins gagnvart þessu svæði sem hefur því miður ekki verið nógu jákvætt hvað þessi mál varðar. Á sama tíma voru eignir varnarliðsins seldar í gegnum sérstakt félag og allur sá söluhagnaður sem þar kom fram fór svo til óskiptur í ríkissjóð og ekki til svæðisins á Suðurnesjum sem full þörf hefði þó verið fyrir.

Að þessu sögðu langar mig líka aðeins að minnast á aðra þætti, þ.e. heilbrigðisstofnunina, löggæsluna og Fjölbrautaskólann, þessar stofnanir ríkisins sem ríkinu ber að færa lögbundin fjárframlög svo að hægt sé að reka þær. Gríðarleg fólksfjölgun hefur haft þau áhrif að lögreglan hefur þurft að sinna mjög mörgum störfum er varða hælisleitendur, flóttamenn o.s.frv. sem tengjast flugstöðinni. Þá hefur vinnuframlag lögreglunnar ekki verið nægilegt gagnvart íbúunum á svæðinu. Að sjálfsögðu hefði átt að bæta það upp þannig að íbúar njóti sömu þjónustu þrátt fyrir hið aukna álag á lögregluna.

Það sama er að segja um Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, gríðarlegt álag hefur verið þar. Ég get nefnt sem dæmi að ekki er langt síðan að ég óskaði eftir símatíma við lækni og var mér sagt að ég gæti fengið hann eftir þrjár vikur. Þetta er náttúrlega alveg ótrúleg þjónusta og ekki fólki bjóðandi. Nú er svo komið að margir eru farnir að leita til höfuðborgarsvæðisins eftir þessari þjónustu; það á náttúrlega ekki að vera þannig. Það á að vera þjónusta í nærumhverfinu sem íbúarnir eiga rétt á. Ég segi eins og hv. þm. Oddný G. Harðardóttir sagði áðan: Suðurnesjamenn eiga rétt á sömu þjónustu og aðrir. Það er mjög einkennilegt að ríkisvaldið skuli ekki vera búið að átta sig á þessu enn þá. Ég hvet stjórnvöld og ríkisstjórnarflokkana til að taka sig á í þessum efnum og veita sömu þjónustu á Suðurnesjum og í öðrum byggðarlögum.

Mig langar í lokin, frú forseti, að minnast aðeins á fleiri stofnanir sem hafa orðið út undan en kannski ekki farið hátt í umræðunni. Það er t.d. Þekkingarsetur Suðurnesja í Sandgerði. Það er mjög athyglisvert að skoða þróun fjárveitinga frá ríkinu aftur í tímann hvað það varðar. Þekkingarsetrið fékk árið 2012 15 millj. kr. Árið 2018 voru það 19 milljónir. En ef við berum það saman við önnur þekkingarsetur, eins og t.d. í Vestmannaeyjum og á Blönduósi, sem eru mjög áþekk þekkingarsetur, þá fengu Vestmannaeyjar árið 2013 24,6 milljónir og 29 milljónir kr. á þessu ári. Og Blönduós fékk 21 milljón á þessu ári. Við sjáum að þarna eru áþekk þekkingarsetur að fá töluvert hærri upphæðir en Þekkingarsetur Suðurnesja. Þetta er enn eitt dæmið um þessa misskiptingu í fjárframlögum sem verður að leiðrétta.

Svo að ég nefni heilsugæsluna í nágrannabyggðarlögum við Reykjanesbæ er t.d. engin þjónusta í hinu nýja stóra sveitarfélagi Suðurnesjabyggð, sem Sandgerði og Garður heyra nú undir eftir sameiningu. Þar búa um 3.500 manns. Þar eru engin „sel“, eins og kallað er, og þar er engin dagdvöl aldraðra svo að dæmi séu tekin. 3.500 manna sveitarfélag á landsbyggðinni hefur yfirleitt heilsugæslu og slíka þjónustu.

Síðan er það Reykjanessjarðvangur eða Geopark eins og það er nefnt. Það hefur gengið mjög erfiðlega að rétta hlut hans. Erindi barst frá jarðvangnum til fjárlaganefndar síðastliðið haust sem var svo sannarlega þarft en gekk ekki eftir. Það má nefna þessa tvo jarðvanga, Katla Geopark og Reykjanes Geopark. Katla er með sérstakan samning við ríkisvaldið og ég held að þar sé u.þ.b. 20 millj. kr. framlag næstu fjögur árin á sama tíma og við sjáum engan slíkan samning við Reykjanes Geopark. Gleymum því ekki að Reykjanes Geopark nær yfir allt landsvæði sveitarfélaganna á Suðurnesjum. Óskað hefur verið eftir landvörslu o.s.frv. og reyndar hefur aðeins verið tekið á því. En kjarninn er þessi: Þarna er enn ein stofnun, ef svo má að orði komast, (Forseti hringir.) sem nýtur ekki sömu fjárframlaga og sambærileg stofnun. Það er brýn þörf á því, frú forseti, að leiðrétta þessi fjárframlög. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa tillögu.