staða sveitarfélaganna á Suðurnesjum.
Frú forseti. Ég ætla aðeins að blanda mér inn í þessar umræður eða taka til máls til þess að stuðningur allra þingmanna komi svolítið betur í ljós, að minnar kosti fulltrúa allra flokka. Við stöndum frammi fyrir nokkurra ára uppsafnaðri þörf. Ég veit í sjálfu sér ekki til hve margra ára en þetta er ekki ný bóla sem hér þarf að láta hjaðna. Það er alveg á hreinu.
Staða sveitarfélaganna er ólík, það vita sennilega flestir. Ég ætla ekki að nefna nein sérstök sveitarfélög. Sum standa betur en önnur; hjá öðrum vantar verulega upp á — og ég tala nú ekki um hjá því stærsta sem er Reykjanesbær. Það hefur verið komið inn á hversu stór hann er nú orðinn. Þessi hraði vöxtur, sem á sér lítil fordæmi, hefur skapað grundvöll fyrir ýmsu sem við fögnum. Ég nefni sem dæmi að atvinnuleysi er ekki með þeim hætti sem áður var og öll — eða flest, vonandi öll — fögnum við þeirri fjölmenningu sem blómstrar í öllum þessum bæjum. Það hefur líka tekist nokkuð vel að vinna úr slæmri skuldastöðu þar sem það á við.
En svo eru það vandamálin sem fylgja, hin hliðin á túkallinum. Það hefur verið farið í gegnum það hér og óþarfi að endurtaka staðreyndir. Það eru húsnæðismálin, samgöngurnar, heilbrigðisþjónustan, menntamálin og ýmiss konar þjónusta sveitarfélaganna. Þau hafa þá réttilega gagnrýnt sein viðbrögð, hvort það er þessi ríkisstjórn eða ríkisstjórnin þar á undan, eða hvaða ríkisstjórn það er, við að leiðrétta það til að bæta úr. Fyrir liggur sannferðug skýrsla um stöðuna og þetta misgengi sem er orðið öllum augljóst. Sveitarfélögin hafa líka unnið nokkuð hörðum höndum að því að leggja fram hugmyndir og tillögur eða óskir, en eins og glöggt hefur komið fram gengur of hægt að vinna á því.
Við erum þá allir þingmenn hér á þessari ágætu tillögu hv. þm. Oddnýjar G. Harðardóttur, og það er í sjálfu sér meira en gleðilegt. Það sýnir að þingmenn Suðurkjördæmis úr öllum flokkum standa saman í þessu þrifamáli. Þingsályktunartillagan er hógvær í besta lagi, snýst jú um að skipa starfshóp sem hefur ákveðin tiltekin verkefni sem vonandi leiða til þess að lausn finnst á þessu öllu. Við bindum öll vonir — og ég sit í hv. umhverfis- og samgöngunefnd — við skjóta og skilvirka afgreiðslu þessa máls á þann hátt sem íbúar Suðurnesja eiga skilið.
Ég veit að ég mæli fyrir munn þeirra sem ekki hafa tekið hér til máls eða munu ekki gera það, þingmenn annarra flokka sem allir eru þarna sem einn maður. Ég ætla að hvetja ríkisstjórnina til að leggja sitt af mörkum til að leysa málið. Ég geri mér líka grein fyrir því — og halda þarf því til haga — að í þetta þarf svo og svo gilda sjóði. Ég hef ekki hugmynd um hver verðmiðinn er, hversu marga milljarða þarf til að laga og leiðrétta þetta misgengi. En það er þá eitt verkefni þessa verkefnahóps að finna það út.
Mig langar að lokum aðeins að koma inn á orð hv. þm. Birgis Þórarinssonar hér á undan mér varðandi náttúrustofurnar. Það hefur verið lagt ólíkt fé til þeirra á landsvísu vegna sérverkefna. Þær hafa allar sama grunninn en síðan hafa þær fengið sérstakar fjárveitingar til sérverkefna. Það hefur líka verið skorið niður til þeirra en yfirleitt hefur tekist í gerð fjárlaga að laga það, að fá fram aukaframlög, þannig að grunnurinn hefur verið nokkuð stöðugur. En svo koma þessi aukaframlög vegna verkefna. Þau geta tengst náttúruvá eða öðru slíku. Það er ekki allt sem sýnist þegar þessar upphæðir eru bornar saman.
Sama á við varðandi jarðvangana. Þessi fjárveiting til Kötlu Geopark kom fram fyrir tveimur árum, þannig að þetta er til tiltekins árafjölda. Jarðvangar eru verkefni sveitarfélaganna. Það er ekki grunnhugsunin að ríkið komi þarna að. En nú hefur það gerst í Kötlujarðvangi og ég skil algerlega þá kröfu eða það viðhorf að gæta skuli jafnræðis og það gildir líka fyrir Reykjanesjarðvang sem ég á stóran þátt í að hafa komið á á sínum tíma; hann er mér mjög kær. En ég vil bara að því sé haldið til haga að til þess þarf alveg sérstaka samninga. Ég veit að hæstv. umhverfis- og auðlindaráðherra hefur verið að skoða með hvaða hætti hann geti tengt það inn í landvörslu á friðuðum svæðum eða annað slíkt, til þess að eitthvert viðlíka samkomulag verði gert við Reykjanesjarðvang. Það er líka ágætt að þetta komi fram og sé á hreinu. Að öðru leyti er ég bjartsýnn á að þessi þingsályktunartillaga sé fyrsta skrefið í því að þessi leiðréttingarvinna hefjist.