kolefnismerking á kjötvörur.
Hæstv. forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir. Jú, það er mjög fín ábending. Það væri mjög gott ef við gætum haft einhvers konar sameiginlega merkingu og gætum tekið höndum saman um að hafa þetta jafnvel rafrænt þannig að maður þurfi ekki að flækja málin með endalausum merkingum með tilheyrandi kostnaði.
En ég sé fyrir mér að það þurfi að byrja einhvers staðar. Það er kannski líka ástæðan fyrir því af hverju bara var verið að miða við kjöt í staðinn fyrir að fara jafnvel líka út í grænmetisframleiðslu eða matvælaframleiðslu úr mjólkurvörum og slíkt. Ég þakka kærlega fyrir.