149. löggjafarþing — 72. fundur,  28. feb. 2019.

kolefnismerking á kjötvörur.

275. mál
[14:51]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka þingmanninum framsöguna. Mér sýnist ég vera á svipuðum slóðum og hv. þm. Smári McCarthy í andsvari mínu. Mig langar að spyrja hvers vegna sé settur fókus bara á kjötvöru en ekki líka á innflutta vöru. Ég held að það skipti mjög miklu máli fyrir neytendur sem vilja vera meðvitaðir um þau umhverfisáhrif sem neysla þeirra hefur að geta tekið upplýsta ákvörðun í búðinni. Til þess þyrfti að merkja kjöt, sama hvaðan það kemur, og það vistspor sem það hefur valdið og ekki síður hvað varðar grænmetið, þar er t.d. vistspor flutnings hlutfallslega miklu stærri hluti af heildarsporinu en af kjöti þar sem flutningssporið er hverfandi hluti af þeim heildaráhrifum sem verða af framleiðslu og flutningi þess.