kolefnismerking á kjötvörur.
Hæstv. forseti. Ég ætla bara að þakka hv. þm. Önnu Kolbrúnu Árnadóttur fyrir að mæla fyrir þessari þingsályktunartillögu, sem ég er reyndar er einn af flutningsmönnum að. Hún er unnin af henni og hv. varaþingmanni Þorgrími Sigmundssyni, sem var hér inni á þingi fyrir jólin. Ég get tekið undir með þeim sem hafa verið hérna á undan mér í ræðupúlti og að það mætti skoða þetta með matvæli almennt sem eru líka framleidd hér heima til að vinna það betur í tillögunni þegar hún kemur til nefndar og ásamt fleiri atriðum sem ég hef ekki tíma til að nefna í þessari ræðu. Ég vil bara þakka fyrir þessa ræðu og kem kannski með spurningu í seinna andsvari.