149. löggjafarþing — 72. fundur, 28. feb. 2019.
kolefnismerking á kjötvörur.
275. mál
Hæstv. forseti. Ég þakka þingmanni kærlega fyrir samsvarið, er það ekki það sem þeir segja hérna á hliðarlínunni. Ég vonast líka sannarlega að þessi tillaga fái góða afgreiðslu í atvinnuveganefnd. Nú fór ég að hugsa þetta áfram. Nú höfum við fréttir af því að stærstu hótel landsins flytji allt inn sjálf. Það verður spennandi að sjá hvort svoleiðis keðjur munu skipta um kúrs, ef svo má segja, þannig að við leggjumst öll á eitt.