kolefnismerking á kjötvörur.
Hæstv. forseti. Já, það er gaman að taka þátt í þessu vegna þess að við erum að glíma við þessa vá sem stuðlar að loftslagsbreytingum. Margir hafa talað um og við líka í okkar ranni hvað megi gera til að mæta þessari vá með betri hætti. Einmitt þessi flutningur á milli landa, bæði með skipum og flugvélum, er eitt af því sem eykur á þennan vanda og mætti útvíkka þetta með kannski öðrum þingsályktunartillögum hvað varðar aðrar hliðar á þessum vanda í sambandi við ýmsan annan innflutning en matvæli. Bara af því sá sem hér stendur er í atvinnuveganefnd þá mun ég taka þessari þingsályktunartillögu fagnandi og vona að hún fái góðan framgang.