kolefnismerking á kjötvörur.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Páli Jónssyni kærlega fyrir. Það er kannski eitt sem má heldur ekki gleymast í þessu. Það eru sauðfjárbændur, þeirra hagur verður að rúmast inni í allri þessari hugsun þó að maður sjái gjarnan að það séu fleiri matvæli undir heldur en aðeins lambakjöt. Við viljum þrátt fyrir allt stuðla að því að við kaupum innlenda framleiðslu og að við getum orðið nokkurn veginn sjálfbær í því sem við tökum okkur fyrir hendur. Vonandi er þetta liður í því og eins og ég byrjaði á að segja: Við verðum einhvers staðar að byrja.