umræður og andsvör.
Frú forseti. Ég geri ekki athugasemd við fundarstjórn forseta að þessu sinni en þó þykir mér ástæða til að nefna að þegar ég kom fyrst inn á þing fyrir ekki mörgum árum var mér kurteislega bent á að ekki væri til siðs að menn úr sama flokki væru í andsvörum hver við annan, andsvaraformið væri fyrst og fremst vegna þess að ætla mætti að menn í sama flokki hefðu svipaða sýn á málin og að það yrði hreinlega til að grynnka umræður, en vissulega geta komið upp þau tilfelli að menn í sama flokki séu hreinlega ósammála og hafi um eitthvað að ræða. (Gripið fram í: Það gerist.) Það gerist, en mér þykir ástæða til að nefna í ljósi þess sem við höfum séð ítrekað undanfarna daga að í 70. gr. þingskapalaga er sagt að forseti megi leyfa andsvör og væntanlega felst í því líka að mega sleppa þeim.