149. löggjafarþing — 72. fundur,  28. feb. 2019.

umræður og andsvör.

[15:03]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (Vg):

Virðulegur forseti. Þegar ég var að verða 17 ára gamall að læra á bíl á Selfossi var hraðablinda meðal þess sem mér var kennt. Hún grípur menn stundum þegar þeir koma undan Ingólfsfjalli á 90 km hraða og eru allt í einu komnir á 50 km svæði á Selfossi og gleyma sér. Þeir halda uppteknum hætti og hægja ekki á sér. Mér virðist hið sama eiga sér stað hér með fulltrúa Miðflokksins sem eru enn, eftir 18 klukkustunda æfingar í því að vera í andsvörum hver við annan í málum síðustu tvo sólarhringa, að keyra aðeins of hratt. Ég sé að hér er fulltrúi Miðflokksins í forsætisnefnd mættur í salinn og vænti þess að hann minni félaga sína góðfúslega á að svona andsvör eru ekki til að bæta mál ef þau snúast ekki um annað en að mæta upp í pontu og þenja málvöðvana.