149. löggjafarþing — 72. fundur,  28. feb. 2019.

umræður og andsvör.

[15:04]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Frú forseti. Ég missti af þessari skemmtun nema bara því síðasta. Það er málfrelsi í þessum sal og það er yfirleitt ekki takmarkað nema eitthvað mikið liggi við. Ég skil einræðistendensa úr þessari átt. Þetta er fólk sem aðhyllist þá hugmyndafræði en fyrir okkur hin held ég að það sé bara mjög sjálfsagt að menn hafi málfrelsi og tillögurétt og geti hagað málflutningi sínum nokkurn veginn óritskoðað af einhverjum öðrum. Ég held að það sé affarasælast. Ég vil minna hv. þingmann á það að þó að hann sé ungur að árum ætti hann kannski að renna á nokkrum umræðum frá árunum 2013–2016 þegar félagar hans stóðu hér uppi löngum stundum og ræddu um ekkert hver við annan. Ég skil eiginlega ekki þessa umræðu, frú forseti, nema að því leyti að ég skil að einhverjir einræðistendensar komi úr þessum áttum. Ég bið menn að róa sig og sýna hver öðrum tillitssemi.