149. löggjafarþing — 72. fundur, 28. feb. 2019.
umræður og andsvör.
Virðulegur forseti. Það er ekki ætlun mín að lengja þessa umræðu neitt meira en þegar ég er sakaður af einum af forsetum þingsins um einræðistendensa — einræðistendensa, forseti, tvisvar — og það að fara fram á ritskoðun á þingmönnum sem ég gerði ekki hlýt ég að beina því til sitjandi forseta að viðkomandi þingmaður sé ávíttur.