149. löggjafarþing — 72. fundur,  28. feb. 2019.

umræður og andsvör.

[15:06]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Virðulegi forseti. Eflaust er hægt að finna dæmi þess að það sé bæði við hæfi og algjörlega forsvaranlegt að fólk úr sama flokki fari í andsvör hvert við annað, t.d. þegar fólk kemur úr ólíkum kjördæmum, talar fyrir ólíkum hagsmunum og endurspeglar ólíka hópa. Það hefur ólík sjónarmið þó að það aðhyllist sömu grundvallarhugsjónir og sé þess vegna í sama flokki. Hitt er svo annað mál ef fólk úr sama flokki kemur þráfaldlega, aftur og aftur, í ræðustól til að taka hvert undir með öðru, þá hefur sú tegund af samræðum sem á sér stað breytt tilgangi sínum. Ég vil minna hv. þingmenn á það, eins og hæstv. forseti mun raunar hafa gert líka, að þetta heita andsvör.