umræður og andsvör.
Frú forseti. Ég ætla að bæta við í þriðja sinn og mótmæla því að menn hafi uppi einræðistilburði eins og hv. þm. Andrés Ingi Jónsson hafði hér uppi. Eins og ég sagði áðan ríkir málfrelsi í þessum sal og menn fara eftir þingsköpum eins og þau eru. Ef það á að fara að skammta mönnum ákveðnar formúlur um það hvernig þeir eiga að tala þurfum við væntanlega að breyta þingsköpunum. Það getur vel verið að hinn flokkurinn á Alþingi sameinist um að þrengja að málfrelsi manna. Það væri mjög fróðlegt og það væri athyglisvert ef slík tillaga kæmi fram. Ég held að menn eigi þá bara að ganga alla leið og breyta þingsköpum ef þeir eru svona uppnæmir fyrir þessu.
Ég segi aftur að ég held að menn ættu að kíkja aðeins aftur í söguna. Það er nærtækt að horfa til áranna 2013–2016 þegar hér voru langar umræður oft og tíðum.