149. löggjafarþing — 72. fundur,  28. feb. 2019.

umræður og andsvör.

[15:08]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Frú forseti. Það er rétt sem hæstv. 3. varaforseti Alþingis bendir á, oft þurfti að ræða málin hér á kjörtímabilinu 2013–2016, enda var um stórmál að ræða og mikinn ágreining. Hins vegar virtum við þá vinnureglu sem við höfum haft í þinginu, að fara ekki í andsvör eða spyrja samflokksmenn út úr nema það sé eitthvað alveg sérstakt og bara í algjörum undantekningartilfellum.

Þegar talað er um einræðistilburði finnst mér mjög skrýtið ef einn flokkur á Alþingi ætlar að umbylta þeirri vinnureglu sem við höfum haft í þinginu án þess svo mikið sem að ræða það við okkur á einum fundi. Það væri t.d. upplagt að taka málið upp hjá þingflokksformönnum því að það breytir ásýnd og (Forseti hringir.) áherslum í samtölum okkar í þessum þingsal ef við ætlum að taka þetta upp sem reglu sem hæstv. 3. varaforseti Alþingis vill svo gjarnan gera ef ég heyri rétt.