umræður og andsvör.
Virðulegur forseti. Örstutt um málfrelsið. Ég hef svo sem ekkert á móti því ef fólk úr sama flokki kemur í andsvör hvert við annað ef það hefur eitthvað málefnalegt fram að færa. Í þessu tilviki kom í andsvari hjá hv. þm. Sigurði Páli Jónssyni að hann ætlaði kannski að spyrja spurningar í seinna andsvari. Það var engin viðbót sem slík og það að samflokksmaður kom í andsvar hafði tíma af hinum fyrirspyrjendunum þar sem tímamörkin breytast og þá voru komnir þrír í andsvör sem voru með tvær mínútur í fyrra skiptið og svo eina mínútu til að spyrja, en það breyttist í eina og eina. Þar hafa þá í raun samflokksmenn ákveðið málfrelsi af öðrum fyrirspyrjendum sem komu með mjög málefnalegar og gagnlegar viðbætur við málið og fengu mögulega ekki tíma til að koma öllu að sem þeir vildu.