149. löggjafarþing — 72. fundur,  28. feb. 2019.

umræður og andsvör.

[15:11]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Virðulegi forseti. Mér þótti sérkennilegt að heyra þingmann úr flokki sem talaði hér og einokaði ræðustólinn sólarhringum saman án þess að nokkuð væri reynt að reisa rönd við því eða stöðva það kvarta yfir því að vera beittur einhvers konar einræðistilburðum þegar aðrir þingmenn láta svo lítið að minnast á að þetta hafi kannski verið dálítið mikið.

Ég mótmæli því að hv. þingmaður noti svona orðalag og beiti orðbragði um samþingsmenn sína eins og hv. þingmaður notaði um hv. þm. Andrés Inga Jónsson. Mér finnst að við eigum ekki að tala svona hvert við annað og ekki að nota svona orðalag. Ég tel að þegar maður er (Forseti hringir.) nýkominn úr málþófi sem brýtur vissulega blað vegna þess að þar var einn flokkur sem hélt uppi málþófi eigi maður að vera háttvís.